fbpx
Miðvikudagur 08.maí 2024
433Sport

Aron Einar búinn að skrifa undir hjá Heimi í Katar

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 18. mars 2019 19:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Al-Arabi hefur með myndbandi á Twitter staðfest komu Arons Einars Gunnarsson til félagsins. Talsvert er síðan að Aron skrifaði undir.

Þetta var hins vegar gert opinbert í dag en Aron mun ganga til liðs við Al-Arabi í Katar í sumar.

Samningur hans við Cardiff er þá á enda en þjálfari Al-Arabi er Heimir Hallgrímsson, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands.

Aron skrifaði undir tveggja ára samning við Al-Arabi en með mögleika á þriðja árinu. Samkvæmt heimildum 433.is, hann fór í læknisskoðun á Bretlandi fyrir talsverðu síðan.

Aron er þrítugur á þessu ári en hann hefur spilað með Coventry og Cardiff á Englandi og átt afar farsælan feril.

Hann fer nú til Katar þar sem álagið er minna og gæti það lengt feril landsliðsfyrirliðans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Segist hafa gert nákvæmlega sömu mistök og Arnar – „Þess vegna segi ég þetta“

Segist hafa gert nákvæmlega sömu mistök og Arnar – „Þess vegna segi ég þetta“
433Sport
Í gær

Sancho hefur engan áhuga á því að snúa aftur til United

Sancho hefur engan áhuga á því að snúa aftur til United