Srdjan Tufegdzic eða Túfa mun ekki halda áfram þjálfun hjá Grindavík eftir tímabilið í sumar.
Þetta staðfesti félagið í dag en Túfa þjálfaði liðið í aðeins eitt ár eftir góðan árangur með KA.
Grindavík stóð sig vel varnarlega í sumar en sóknarleikurinn var slakur og varð til þess að félagið féll úr efstu deild.
Um var að ræða sameiginlega ákvörðu að sögn Grindavíkur sem er nú hluti af Inkasso-deildinni.
Það er því óvíst hvað Túfa tekur sér fyrir hendur en hann er talinn vera á óskalista Þórsara.