Það er talsvert sem kemur á óvart í byrjunarliði Erik Hamren fyrir landsleikinn gegn Frakklandi klukkan 18:45.
Það sem kemur mest á óvart er að Guðlaugur Victor Pálsson leikur í stöðu hægri bakvarðar, Guðlaugur er miðjumaður að upplagi. Hann fær tækifæri í hægri bakverðinum sem hefur verið vandræða staða í tíð Hamren.
Hamren velur það að spila bara með einn framherja og það er Kolbeinn Sigþórsson, sem fær traust Hamren í dag.
Arnór Ingvi Traustason er á vinstri kantinum og Rúnar Már Sigurjónsson og Birkir Bjarnason á miðsvæðinu. Fyrir framan þá er Gylfi Þór Sigurðsson.
Byrjunarlið Íslands:
Hannes Þór Halldórsson
Guðlaugur Victor Pálsson
Kári Árnason
Ragnar Sigurðsson
Ari Freyr Skúlason
Jóhann Berg Guðmundsson
Rúnar Már Sigurjónsson
Birkir Bjarnason
Arnór Ingvi Traustason
Gylfi Þór Sigurðsson
Kolbeinn Sigþórsson.