Það var tómlegt á Old Trafford á fimmtudaginn er lið Manchester United spilaði við FC Astana.
Astana er lið frá Kasakstan en viðureignin var í Evrópudeildinni og endaði 1-0 fyrir heimamönnum.
Aðeins rúmlega 50 þúsund manns mættu á leikinn á fimmtudag sem eru lægstu tölurnar í sjö ár.
50,783 manns mættu á Old Trafford til að sjá United sigra en það hefur ekki verið eins fámennt frá árinu 2012.
Það má búast við að fleiri láti sjá sig í næsta heimaleik í ensku úrvalsdeildinni gegn Arsenal.