Mjallby i Svíþjóð hefur staðfest að lánsdvöl Gísla Eyjólfssonar hafi verið rift. Hann kemur aftur til Breiðabliks.
Gísli yfirgaf Blika fyrir atvinnumennskuna í desember og skrifaði þá undir lánssamning við Mjallby.
Mjallby leikur í næst efstu deild í Svíþjóð en Gísli stoppar þar stutt og er nú á heimleið.
Gísli er 24 ára gamall miðjumaður og verður löglegur með Blikum þann 1. júlí næstkomandi.
Hann getur því spilað með liðinu í mikilvægum toppslag gegn KR sem fer fram í næstu umferð.
Mjällby AIF, Gisli Eyjolfsson och hans klubb Breidablik har gemensamt beslutat att avbryta det låneavtal som egentligen löper säsongen ut. Avtalet upphör att gälla från 1/7. Vi passar på att tacka Gisli för den tid han varit klubben och önska honom lycka till i framtiden.
— Mjällby AIF (@MjallbyAIFs) June 26, 2019