Erik Hamren hefur valið hóp sinn fyrir afar mikilvæga leiki gegn Albaníu og Tyrklandi, í undankeppni EM.
Taki Ísland sex stig í þessum tveimur leikjum er staðan góð fyrir komandi átök.
Tyrkir eru með sex stig eftir tvo leiki en Ísland hefur þrjú, eftir sigur á Andorra í mars.
Alfreð Finnbogason er frá vegna meiðsla en Emil Hallfreðsson, snýr aftur. Hann er aftur mættur á fullt eftir erfið meiðsli.
Hamren velur 25 leikmenn í hópinn en það vekur athygli að Kolbeinn Sigþórsson framherji AIK er í hópnum.
Hópurinn
Hannes Halldórsson
Rúnar Alex Rúnarsson
Ögmundur Kristinsson
Birkir Már Sævarsson
Hörður Björgvin Magnússon
Ari Freyr Skúlason
Kári Árnason
Ragnar Sigurðsson
Sverrir Ingi Ingason
Jón Guðni Fjóluson
Hjörtur Hermannsson
Birkir Bjarnason
Aron Einar Gunnarsson
Gylfi Sigurðsson
Rúnar Már Sigurjónsson
Guðlaugur Victor Pálsson
Arnór Ingvi Traustason
Arnór Sigurðsson
Jóhann Berg Guðmundsson
Rúrik Gíslason
Emil Hallfreðsson
Viðar Örn Kjartansson
Jón Daði Böðvarsson
Kolbeinn Sigþórsson
Albert Guðmundsson