Breiðablik kom sér upp í annað sæti Pepsi Max-deildar karla í kvöld er liðið spilaði við Íslandsmeistara Vals.
Leikið var á Origo-vellinum á Hlíðarenda og í fjörugum leik höfðu gestirnir frá Kópavogi betur.
Sigur Blika var sanngjarn en liðið var miklu sterkara liðið framan af og átti að skora fleiri mörk.
Eina mark leiksins skoraði Andri Rafn Yeoman í seinni hálfleik og reyndist það nóg til að tryggja sigur.
Blikar eru þremur stigum á eftir toppliði ÍA eftir sex umferðir en Valur er með fjögur stig af 18 mögulegum í 10. sætinu.
Fylkir og FH áttust við á sama tíma en þeim leik lauk með 2-2 jafntefli þar sem Fylkismenn komust tvisvar yfir.
Valur 0-1 Breiðablik
0-1 Andri Rafn Yeoman(80′)
Fylkir 2-2 FH
1-0 Kolbeinn Birgir Finnsson(11′)
1-1 Hjörtur Logi Valgarðsson(22′)
2-1 Helgi Valur Daníelsson(61′)
2-2 Brandur Olsen(62′)