Swansea 2-3 Manchester City
1-0 Matt Grimes(víti, 20′)
2-0 Bersant Celina(29′)
2-1 Bernardo Silva(69′)
2-2 Kristoffer Nordfeldt(sjálfsmark, 78′)
2-3 Sergio Aguero(89′)
Manchester City er komið áfram í næstu umferð enska bikarsins eftir leik gegn Swansea í kvöld.
Swansea leikur í næst efstu deild á Englandi og spilaði frábærlega í fyrri hálfleik gegn meisturunum.
Staðan var 2-0 fyrir heimamönnum frá Wales eftir fyrri hálfleikinn og City í vandræðum.
Ensku meistararnir sneru þó blaðinu við í seinni hálfleik og tókst að skora þrjú mörk með stuttu millibili.
Það var Sergio Aguero sem tryggði City áfram en hann gerði sigurmark liðsins á 89. mínútu.