Það er alls ekki rétt að Jose Mourinho, fyrrum stjóri Chelsea og Manchester United, sé mjög hrokafullur maður.
Þetta segir Brasilíumaðurinn Alex en hann vann aðeins með Portúgalanum hjá Chelsea.
Mourinho er þekktur fyrir að liggja ekki á sínum skoðunum og hefur margoft vakið athygli fyrir athyglisverð ummæli í fjölmiðlum.
,,Mourinho kom mér á óvart. Ég var með þá hugmynd að hann væri mjög hrokafullur maður með risastórt egó,“ sagði Alex.
,,Það var vegna þess sem við sáum í fjölmiðlum en þegar ég kynntist honum sá ég allt annað.“
,,Ég vann aðeins með honum í þrjá mánuði hjá Chelsea en við sátum alltaf hlið við hlið og töluðum saman mikið.“
,,Mér líkaði vel við hann sem manneskju og sem þjálfara. Auðvitað er hann með sínar eigin leiðir til að ná því besta úr leikmönnum og stundum eru þeir ekki á sömu blaðsíðu.“