Zlatan Ibrahimovic, fyrrum leikmaður Manchester Unted og Paris Saint-Germain, var í dag beðinn um að spá í spilin fyrir viðureign þessara liða.
United og PSG eru að hefja leik í Meistaradeildinni en um er að ræða 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar.
Zlatan hefur eins og áður sagði leikið með báðum liðum og er valið því erfitt fyrir hann.
,,PSG er að spila við lið sem er í toppformi þessa stundina svo það getur all gerst gegn United, gegn hvaða liði sem þeir spila,“ sagð Zlatan.
,,Ef þú hefðir spurt mig áður en gengi þeirra breyttist þá myndi ég segja PSG en nú er það erfitt.“
,,Ég held þó að PSG sé sigurstranglegra liðið vegna leikmannana sem þeir eru með innanborðs.“
,,Sama hvaða lið vinnur, þá er ég sigurvegari. Mitt lið verður ennþá í Meistaradeildinni.„