Gennaro Gattuso, stjóri AC Milan, var bálreiður í gær eftir 3-1 tap liðsins gegn Olympiakos í Evrópudeildinni.
Milan hefði mátt tapa leiknum með einu marki í gær en vítaspyrna undir lokin tryggði þeim grísku 3-1 sigur.
Það reyndist nóg til að slá þá ítölsku úr leik og var Gattuso virkilega reiður eftir úrslitin.
,,Við gáfum þeim leikinn. Ég er brjálaður því við hefðum getað verið mun sterkari þrátt fyrir allt sem átti sér stað varðandi það að komast áfram,“ sagði Gattuso.
,,Við vorum með þennan leik í okkar höndum en þegar þú klikkar á átta færum á velli eins og þessum og svo að missa hausinn þegar hlutirnir ganga ekki upp, þá áttu skilið að fara heim.“
,,Við höfum sýnt það að við erum ekki nógu góðir til snúa leiknum okkur í vil þegar tækifærið gefst.“
,,Það er rétt að það voru umdeildar ákvarðanir teknar af dómaranum en ef þú skapar átta marktækifæri í þessu umhverfi og svo byrjaru að gera heimskuleg mistök, þá er bara rétt að fara heim. Við áttum ekki skilið að fara lengra.“