Maurizio Sarri hefur byrjað vel á Englandi en hann var ráðinn stjóri Chelsea í sumar.
Sarri og félagar eru í fínu standi þessa stundina en liðið er taplaust í ensku úrvalsdeildinni.
Sarri hefur nú nefnt besta leik liðsins undir hans stjórn og vekur athygli að það var ekki sigurleikur.
Sarri talar um leik gegn Liverpool í september sem lauk með 1-1 jafntefli á Stamford Bridge.
,,Ég er svo ánægður með að vera í úrvalsdeildinni. Í alvöru, ég er mjög ánægður,“ sagði Sarri.
,,Jafnvel þegar leikirnir eru mjög jafnir þá skemmti ég mér. Ég skemmti mér ef leikurinn er góður.“
,,Til dæmis þá unnum við ekki gegn Liverpool en ég naut leiksins. Það var leikur í háum gæðaflokki svo ég var ánægður með frammistöðuna.“
,,Ég held að það hafi verið besti leikurinn okkar hingað til.“