Stuðningsmenn Manchester United á Englandi eru bálreiðir út í miðjumanninn Paul Pogba þessa stundina.
Pogba lék með United í gær í tapi gegn Juventus en liðin áttust við í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Pogba var þar að mæta sínum fyrrum félögum í Juventus en hann yfirgaf félagið fyrir Old Trafford árið 2012.
Frakkinn hefur oft átt betri leiki en í gær en það voru ekki margir leikmenn enska liðsins sem náðu sér á strik.
Margir eru reiðir út í Pogba eftir að mynd birtist af honum skælbrosandi með Juan Cuadrado, leikmanni Juventus, eftir leik.
Cuadrado og Pogba þekkjast vel en það þykir kannski ekki sniðugt að birta ‘hamingjusama mynd’ á samskiptamiðla eftir tapleik.
Hér má sjá myndina umtöluðu af Pogba og Cuadrado.
@paulpogba taking pics after the match .. @manutd now am getting sick of many players putting on that shirt many has bled for.. pic.twitter.com/2z8JZXPaOW
— ⚽G£N€RALISARED?⚽ (@GeneralisaRed) 23 October 2018
What an embarrassment this clown is. #Pogba makes me want to stop watching football. @ManUtd have become a joke. pic.twitter.com/Ure46tGDeV
— Richard Goggin (@RichardGoggin) 24 October 2018