Wayne Rooney, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur greint frá því hvaða leikmenn sáu um að stjórna búningsklefanum hjá félaginu á sínum tíma.
Rooney var spurður út í það hvort einhver einn leikmaður kæmist upp með að skapa vandræði í búningsklefanum er hann var hjá félaginu en það kæmi ekki til greina.
,,Það hefði aldrei getað gerst. Leikmenn eins og Ryan Giggs, Gary Neville, Paul Scholes, Rio Ferdinand og ég sjálfur, leikmenn sem voru með Manchester United í blóðinu og vildu það besta fyrir félagið myndu aldrei leyfa einhverjum einum að skemma fyrir,“ sagði Rooney.
,,Við stjórnuðum búningsklefanum, Sir Alex Ferguson þurfti ekki að gera það. Hann treysti leikmönnunum til að sjá um þetta sjálfir.“
Mikið hefur verið rætt um andann hjá United á leiktíðinni en nokkrir leikmenn eru sagðir vera ósáttir.
Paul Pogba, Alexis Sanchez og Anthony Martial eru þeir leikmenn sem talað er um að séu ósáttir í herbúðum félagsins í dag.