AC Milan á Ítalíu er að tryggja sér einn efnilegasta leikmann Brasilíu. Þetta hefur Leonardo, yfirmaður knattspyrnumála félagsins staðfest.
Um er að ræða hinn 21 árs gamla Lucas Paqueta sem spilar fyrir Flamengo í heimalandinu.
Paqueta mun kosta Milan 30 milljónir punda en mörg stórlið höfðu áhuga á að semja við leikmanninn.
Paqueta hefur leikið 41 deildarleik fyrir Flamengo og skorað tíu mörk og á að baki tvo landsleiki fyrir Brasilíu.
,,Við erum með venjulegt samkomulag við Flamengo en glugginn opnar í janúar svo við þurfum að gera smá í viðbót til að klára þetta alveg,“ sagði Leonardo.
,,Nú hugsum við um deildina og Evrópudeildina frekar en gluggann. Eins og staðan er þá er hann leikmaður Flamengo og á eftir að spila leiki fyrir Brasilíu. Við bíðum þar til 3. janúar.„