Bakvörðurinn Filipe Luis gæti verið búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Atletico Madrid á Spáni.
Luis er sterklega orðaður við lið Paris Saint-Germain þessa dagana en franska félagið vill ólmur fá hann.
Jan Oblak, leikmaður Atletico, viðurkennir að það væri sorglegt ef Luis er búinn að spial sinn síðasta leik fyrir félagið.
,,Þetta er örlítið sorglegt en svona er fótboltinn og við þurfum að sjá hvað gerist,“ sagði Oblak.
,,Filipe gæti verið með gott tækifæri í höndunum og við verðum að virða óskir leikmanna liðsins.„