Wayne Rooney, leikmaður DC United í MLS deildinni, hefur byrjað afar vel í Bandaríkjunum en hann fór þangað fyrr í sumar.
Rooney er leikmaður sem allir ættu að þekkja en hann lék lengi með Manchester United á Englandi.
Framherjinn er nú mættur til Bandaríkjanna og skoraði tvö mörk í 4-1 sigri DC á Portland Timbers í nótt.
Annað mark Rooney var virkilega laglegt en hann skoraði þá beint úr aukaspyrnu sem hann hefur gert nokkrum sinnum í gegnum tíðina.
Markið má sjá hér.
Just keep doing you, @WayneRooney. #DCvPOR pic.twitter.com/8QCLU4wM84
— Major League Soccer (@MLS) 16 August 2018