Spænska stórliðið Real Madrid hefur áhuga á að senda Norðmanninn Martin Odegaard til Englands.
Real vonast enn til að þessi 19 ára gamli leikmaður verði að ofurstjörnu en hann kom til Real aðeins 16 ára gamall.
Real telur að Odegaard gæti lært mikið af því að spila á Englandi en hann lék með Heerenveen í Hollandi á láni á síðustu leiktíð.
Það er ekki möguleiki fyrir Odegaard að fara í ensku úrvalsdeildina en glugginn er lokaður.
Samkvæmt fregnum skoðar Real hins vegar að senda Odegaard í Championship-deildina út tímabilið.