Fylkir 1-9 Stjarnan
1-0 Thelma Lóa Hermannsdóttir
1-1 Telma Hjaltalín Þrastardóttir
1-2 Harpa Þorsteinsdóttir
1-3 Harpa Þorsteinsdóttir
1-4 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
1-5 Harpa Þorsteinsdóttir
1-6 Sæunn Rós Ríkharðsdóttir(sjálfsmark)
1-7 Harpa Þorsteinsdóttir
1-8 Guðmunda Brynja Óladóttir
1-9 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
Stjarnan var í miklu stuði í Mjólkurbikar kvenna í dag er liðið heimsótti Fylki í undanúrslitum.
Fylkisstúlkur byrjuðu leikinn vel og komust yfir eftir 19 mínútur er Thelma Lóa Hermannsdóttir kom boltanum í netið.
Þá fór allt á fullt hjá Stjörnunni sem skoraði fjögur mörk í fyrri hálfleik og leiddi 4-1 í leikhléi.
Stjarnan var ekki hætt eftir leikhlé og bætti við fimm mörkum og vann að lokum ótrúlegan 9-1 sigur.
Harpa Þorsteinsdóttir var sjóðandi heit í dag en hún skoraði fjögur mörk í sigri Stjörnunnar.