Stjórnmálamenn þurfa aðhald og rétt er að fagna þegar þeim er veitt það. Starfsfólk Menntaskólans í Reykjavík hefur beðið árangurslaust eftir því að staða rektors við skólann verði auglýst laus til umsóknar en Yngvi Pétursson, núverandi rektor, lætur af störfum 1. ágúst næstkomandi. Skólafélag MR er orðið leitt á aðgerðarleysi menntamálaráðuneytisins og auglýsti því í Fréttablaðinu stöðuna lausa til umsóknar. Netfang Kristjáns Þórs Júlíussonar menntamálaráðherra var látið fylgja með. Líklegt er að einhverjir póstar muni berast menntamálaráðherra eftir þessa snjöllu áminningu frá ungu kynslóðinni. Hér er veðjað á að ráðuneytið muni taka við sér og auglýsa stöðuna mjög fljótlega.