fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

Kynlíf, guð og vopn opnuðu flestar dyr upp á gátt fyrir rússneskan njósnara í Bandaríkjunum

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 5. ágúst 2018 12:00

Maria Butina.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúmlega 2.000 manns sóttu fund á hóteli í Las Vegas þegar forval repúblikana stóð yfir 2015. Þegar Trump var í ræðustól kom hann auga á 26 ára rauðhærða konu í mannhafinu og bauð henni að varpa fram spurningu til sín. Unga konan, sem heitir Maria Butina, sagðist vera frá Rússlandi og vildi gjarnan vita hver stefna Trump yrði gagnvart Rússlandi ef hann myndi sigra í kosningunum. Ætlaði hann að halda refsiaðgerðum áfram, refsiaðgerðum sem sköðuðu efnahagslíf beggja ríkja sagði. Trump strauk svita af efri vörinni og sagði:

„Ég þekki Pútín og ég skal segja þér svolítið. Ég held að okkur muni semja mjög vel við Pútín. Ókei. Ég held ekki að þörf sé á refsiaðgerðum.“

Þegar hún var síðar spurð af hverju hún væri komin alla leið til Bandaríkjanna sagðist hún vera formaður samtaka Rússa sem styðja almenna vopnaeign og að hún vildi afla sér meiri upplýsinga sem gætu gagnast landi hennar. En Butina, sem var nýlega handtekin, þremur árum eftir fundinn í Las Vegas, virðist einnig hafa haft önnur markmið með veru sinni í Bandaríkjunum. Ef það er rétt sem saksóknari heldur fram þá var hún strax þá á fullu við að hrinda í framkvæmd „áhættulítilli áhrifaherferð“ sem ráðamenn í Kreml stóðu á bak við. Markmiðið var að komast inn í hin áhrifamiklu samtök National Rifle Association, NRA, til að komast í tæri við áhrifamikla einstaklinga innan Repúblikanaflokksins í því skyni að halda rússneskum hagsmunum á lofti í nýrri íhaldssamri ríkisstjórn. Það voru ekki bara guð og vopn sem voru notuð í þessu skyni heldur einnig kynlíf.

Lögmaður Butina segir sakargiftirnar vera ýktar og rússneskir ráðamenn hafa sakað alríkislögregluna, FBI, um að hafa handtekið Butina af þeirri ástæðu einni að hún er rússnesk og þekki Torshin sem er varaforstjóri rússneska seðlabankans og valdamikill í stjórnmálaflokki Vladímírs Pútín forseta, Sameinuðu Rússlandi. Butina neitar öllum ásökunum.

Butina flutti til Moskvu 21 árs að aldri og kynntist þá Torshin. Hann er sagður vera heilinn á bak við veru hennar í Bandaríkjunum. Hann réð hana sem aðstoðarkonu og fór að taka hana með á fundi hjá NRA. Hún sótti ársfund NRA 2014 og aftur 2015. Síðan mætti hún á fyrrnefnda ráðstefnu í Las Vegas. Eftir fund hennar með lobbíista úr Repúblikanaflokknum í Moskvu 2014 hrinti hún af stað verkefni sínu „projekt diplomati“ en í því fólst að hún og lobbíistinn fóru að samhæfa aðgerðir sínar. Hann er ekki nafngreindur í málsgögnum en talið er að hér sé um Paul Ericson að ræða en hann er helmingi eldri en Butina. Hann hefur góð sambönd víða í samfélaginu. Þau urðu elskendur.

Annar Bandaríkjamaður

Annar Bandaríkjamaður er einnig tengdur málinu en ekki er vitað hver hann er en í tölvupósti, sem var sendur í mars 2016, fullvissaði Butina þennan mann um að Kreml hefði lagt blessun sína yfir aðgerðir hennar: „Allt sem við þurftum var já frá Pútín,“ skrifaði hún. Nokkru fyrir bandarísku forsetakosningarnar fékk hún námsmannaáritun til Bandaríkjanna og flutti til Washington. Þar hélt hún aðgerðum sínum áfram undir því yfirskyni að hún væri áhugamanneskja um skotvopn og skotvopnaeign.

Þegar allt er tekið saman þá eyddi Butina fimm árum í að koma sér í samband við íhaldssama stuðningsmenn frjálsrar vopnaeignar og trúarleiðtoga. Hún tók myndir af sér með bandarískum stjórnmálamönnum og birti á samfélagsmiðlum. Hún aðstoðaði þekkta fulltrúa NRA við að fara í heimsókn til Moskvu og hún og Ericson héldu glæsilegar veislur til að stækka tengslanetið.

Ekki er vitað hvort Butina hlaut þjálfun sem njósnari en samkvæmt málsgögnum taldi hún samband sitt við Ericson vera „nauðsynlegan hluta af aðgerðum hennar“. Hún er sögð hafa „verið andsnúin“ áframhaldandi sambúð með honum og hafi boðið að minnsta kosti einum öðrum manni kynlíf „gegn því að fá stöðu í hagmunasamtökum“.

Hitti Trump yngri

Alríkislögreglan telur að Butina hafi náð langt og hafi komist í samband við áhrifamikið fólk. Á ráðstefnu NRA 2015 ræddu hún og Torshin við Scott Walker, ríkisstjóra Wisconsin, og hún mætti  þegar Walker tilkynnti að hann ætlaði að sækjast eftir að verða forsetaframbjóðandi repúblikana. Á ráðstefnu NRA 2016 reyndu hún og Torshin að hitta Trump eldri en það gekk ekki upp en þau hittu son hans, Donald Trump yngri, og ræddu að sögn um réttinn til vopnaeignar við hann.

Ef vopnin opnuðu ekki dyr fyrir henni kom guð við sögu. FBI segir að hún hafi margoft sett sig í samband við skipuleggjendur National Prayer Breakfast í Washington en bæði hún og Torshin tóku þátt í þeim samkomum 2016 og 2017. Á síðari samkomunni tókst þeim nærri því að fá fund með Donald Trump, sem var þá nýbúinn að taka við embætti forseta, en ekkert varð af fundinum eftir að Spánverjar sökuðu Torshin um að hafa aðstoðað rússnesku mafíuna við peningaþvætti.

Síðar sendi Torshin henni skilaboð á Twitter og hrósaði henni og sagði pólitíska stjörnu hennar hafa risið. Hún svaraði: „Nú verðum við að bíða og sjá. Við höfum sett spilin okkar út. Ég fylgdi áætluninni.“

Í tölvupósti frá því í mars 2015 segir Butina að Repúblikanaflokkurinn „muni líklegast komast til valda eftir kosningarnar 2016“. Þetta hefur vakið upp spurningar um hvort hún hafi búið yfir vitneskju sem greiningarstofnanir og stjórnmálaskýrendur höfðu ekki á þeim tíma enda töldu þeir að Hillary Clinton myndi sigra í forsetakosningunum en ekki Donald Trump.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 8 klukkutímum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum