Tíu ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 126 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Hann greiddi sektina á staðnum, rúmlega 86 þúsund krónur.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Þá segir lögregla að skráningarnúmer hafi verið fjarlægð af fimm óskoðuðum eða ótryggðum bifreiðum og fáeinir ökumenn teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur. Einn þeirra var án ökuréttinda og annar var með handjárn í bifreið sinni. Sá síðastnefndi verður því einnig kærður fyrir vopnalagabrot, að sögn lögreglu.
Talsverð hálka var á Reykjanesbraut í nótt og hafnaði ein bifreið utan vegar við Kúagerði. Bifreiðin rann út af veginum en sem betur fer urðu engin slys á fólki. Bifreiðin var í ökuhæfu ástandi eftir óhappið.
Fleiri óhöpp hafa orðið í umferðinni í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum, en þau hafa verið minni háttar.