Evgenia Ilyinskaya, vísindamaður og aðalhöfundur greinar útstreymi koltvísýrings úr Kötlu, er ekki sátt við fjölmiðla þar sem fullyrt hefur verið í fréttum að kvika sé að safnast upp í eldfjallinu undir Mýrdalsjökli þegar það er ekki raunin.
Ilyinskaya segir á samfélagsmiðlum að hún hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum með frétt breska dagblaðsins Sunday Times í gær þar sem fullyrt er að Katla sé í þann mund að gjósa. Hún segir snúið út úr orðum sínum og hún hafi aldrei sagt að kvika sé að safnast upp eða að Kötlugos muni stöðva flugferðir í Evrópu líkt og Eyjafjallajökull gerði um árið. „Skammarlegt,“ segir hún á Twitter.
Katla er ein stærsta eldstöð landsins og gýs að jafnaði á 40 til 80 ára fresti, 100 ár eru síðan Katla gaus síðast og því bíða margir eftir næsta gosi.
Því skal haldið til haga að það sem Ilyinskaya og félagar hennar komust að í rannsóknarflugi yfir Kötlu er að mikið magn af koltvísýringi sé að flæða upp. Magnið er svo mikið að Katla er í þriðja sæti á heimsvísu af þeim fjöllum sem búið er að mæla.