fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Bragi og Hannes á toppnum eftir fyrri dag Afmælismóts Hróksins í Ráðhúsi Reykjavíkur

Ritstjórn DV
Laugardaginn 15. september 2018 13:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stórmeistararnir Bragi Þorfinnsson og Hannes Stefánsson eru efstir og jafnir á Afmælismóti Hróksins í Ráðhúsi Reykjavíkur með fjóra vinninga eftir 4 umferðir. Þeir mætast einmitt í 5. umferð, sem hefst í Ráðhúsinu á laugardag klukkan 13. Næstir koma Þröstur Þórhallsson og Jón Viktor Gunnarsson með 3,5 vinning, og í 5.-10. sæti eru hinn ungi Dagur Andri Friðgeirsson, heiðursgestur mótsins Regina Pokorna, Ingvar Þór Jóhannesson, Dagur Ragnarsson, Guðmundur Kjartanssonog Helgi Ólafsson með 3 vinninga. Alls voru 45 keppendur skráðir til leiks, þar af kringum tuttugu titilhafar.

Hrafn Jökulsson, sem verið hefur forseti Hróksins frá upphafi árið 1998, bauð gesti og keppendur velkomna, og sagði að síðustu 20 ár hefðu verið ævintýri líkust. Hrókurinn hefur á þessum tíma staðið fyrir þúsundum skákviðburða, m.a. heimsótt alla grunnskóla á Íslandi og öll sveitarfélög, auk þess að vinna að góðgerðarmálum með samtökum á borð við Fatimusjóðinn, UNICEF, Rauða krossinn, Hjálparstarf kirkjunnar, Barnaheill og SOS-barnaþorp. Þá hafa Hróksmenn staðið fyrir víðtæku landnámi skákarinnar á Grænlandi, og beitt sér mjög fyrir auknum samskiptum nágrannaþjóðanna í norðri.

Að lokinni ræðu Hrafns söng grænlenskur barnahópur tvö lög, og er óhætt að segja að þau hafi brætt allra hjörtu. Börnin eru á Íslandi á vegum Kalak, vinafélags Íslands og Grænlands, til að læra sund og kynnast íslensku samfélagi, og hafa Hróksliðar stutt þetta verkefni frá upphafi. Þetta er þrettánda árið í röð sem sem 11 ára börnum frá litlu þorpunum á austurströnd Grænlands, er boðið hingað á vegum Kalak, með dyggum stuðningi fjölmargra fyrirtækja, einstaklinga, Kópavogsbæjar og hins opinbera.

Dóra Björt Guðjónsdóttir forseti borgarstjórnar flutti setningarávarp mótsins, og sagði að Hrókurinn væri ekkert venjulegt skákfélag. Það starfaði svo sannarlega í anda einkunnarorðanna ,,Við erum ein fjölskylda“ og sýndi það í verki, jafnt á Íslandi sem Grænlandi. Dóra Björt að kjörorð Hróksins hefðu víðtæka skírskotun, eins og glögglega kæmi fram í því að á efsta borði í 1. umferð mættust hin 11 ára gamla Batel Goitom Haile, ein efnilegasta skákstúlka landsins, og goðsögnin Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslendinga, heiðursborgari Reykvíkinga og fv. forseti Alþjóða skáksambandsins.

Það var svo Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sem lék fyrsta leikinn fyrir Batel og Vigdís Finnbogadóttir fv. forseti Íslands lék fyrsta leikinn fyrir Friðrik. Skák þeirra Batelar og Friðriks var æsispennandi og lauk með jafntefli. Þetta voru ein af fjölmörgum óvæntum úrslitum í Ráðhúsinu á föstudag og má vænta þess að fjörið verði ekki minna á laugardag.

Hér má sjá stöðuna á mótinu eftir fjórar umferðir.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum
Pétur Einarsson látinn
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Sigur hjá Harvey Weinstein: Dómi gegn honum í New York snúið við

Sigur hjá Harvey Weinstein: Dómi gegn honum í New York snúið við
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku