Áætlað er að á milli tvö og þrjú þúsund manns hafi komið saman í Gilinu á Akureyri í dag þegar Ísland tapaði fyrir Nígeríu á heimsmeistaramótinu. Veðrið lék við gesti sem sem fylgdust spenntir með leiknum á 15 fermetra risaskjá sem settur var upp af Útvarp Akureyri og Ölstofu Akureyrar.
Þrátt fyrir tap var mikil stemming meðal gesta en í upphafi leiks ákváðu gestir að taka hið víðfræga víkingaklapp. DV var að sjálfsögðu á staðnum og fangaði stemminguna. Sjáðu myndbandið hér að neðan.