fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Lög verði nefnd í höfuðið á öryrkja: Píratar leggja fram frumvörp til réttarbóta fyrir öryrkja

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 7. febrúar 2018 20:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata og formaður velferðarnefndar, mælti í dag fyrir Bergþórsfrumvörpunum svokölluðu á Alþingi. Um er að ræða tvö frumvörp um breytingar á lögum um almannatryggingar sem miða að auknum réttindum lífeyrisþega. Allur þingflokkur Pírata lagði þau fram í lok desember er Halldóra er fyrsti flutningsmaður.

Innan þingflokksins hefur verið talað um að ef frumvörpin verði að lögum skuli kalla þau Bergþórslögin, í höfuðið á Bergþóri Heimi Þórðarsyni sem hefur um árabil tekið þátt í grasrótarstarfi Pírata og átti frumkvæði að því að hefja vinnu við frumvörpin. Bergþór hefur verið öryrki í 15 ár og segir breytingar á almannatryggingakerfinu, sér í lagi til réttindabóta fyrir lífeyrisþega, sé það sem drífur hann áfram í stjórnmálum. „Þetta er ástæðan fyrir því að ég er í pólitík,“ segir Bergþór.

Annað frumvarpið felur í sér að festa frítekjumark tekjutryggingar öryrkja vegna atvinnutekna varanlega í lögunum í stað bráðabirgðaákvæðis sem þarf að endurnýja á hverju ár. Hitt snýst um afnám svokallaðrar krónu á móti krónu skerðingu lífeyrisgreiðslna vegna tekna sem lífeyrisþegar afla sér með atvinnuþátttöku.

„Krónu á móti krónu skerðingin er ein sú allra mesta vanvirða við öryrkja og áður aldraða sem stjórnvöldum hefur nokkurn tímann dottið í hug að sýna gagnvart lífeyrisþegum. Skerðingin segir mér að ég sé minna virði heldur en Jón í næsta húsi sem er frískur og fer í vinnuna á hverjum degi og fær greidd laun frá fyrstu mínútu í vinnu. Miðað við lágmarkstímakaup sem er um 1600 kr. á tímann þá vinn ég fyrir ekki neitt fyrstu 11 tímana á mánuði. Í verstu tilfellunum fær öryrki ekki fyrstu 59 þúsund krónurnar sem hann eða hún vinnur sér inn á mánuði,“ segir Bergþór. Margir lífeyrisþegar hafa kosið að taka ekki þátt á atvinnumarkaði vegna umfangs þeirra skerðinga sem þeir mundu þá verða fyrir.

Hvati Bergþórs á bak við hitt frumvarpið voru koma jólanna. „Allir öryrkjar sem þekkja inn á kerfið vita að frítekjumarkið sem við erum með er bráðabirgðaákvæði. Við vitum venjulega ekki fyrr en rétt fyrir jól hvort það hafi verið munað eftir að framlengja bráðabirgðaákvæðið fyrir næsta ár,“ segir hann.

Í greinargerð með þessu frumvarpi kemur fram: „Þar sem að þessi aðgerð felur ekki í sér breytingu frá núverandi fyrirkomulagi, einungis varanlega lögfestingu þess, mun samþykkt frumvarpsins ekki fela í sér aukinn kostnað ríkissjóðs og því er ekki þörf á að fjalla sérstaklega um hann.“

Bergþór kom í Alþingishúsið í fyrsta sinn

„Bergþór kom í heimsókn á Alþingi í dag og fylgdist með því úr þingflokksherbergi Pírata þegar Halldóra mælti fyrir þessu. Þetta var í fyrsta skipti sem hann kom inn í Alþingishúsið,“ segir Erla Hlynsdóttir, starfsmaður Pírata.

Frumvörpin og greinargerðir með þeim má finna hér og hér

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum