fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Nýtt aðsóknarmet á DV.is

Ritstjórn DV
Föstudaginn 9. nóvember 2018 16:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðustu vikur hefur vefur DV verið á mikilli siglingu og hefur aðsókn aldrei verið meiri í sögu miðilsins frá stofnun hans árið 2007. Í síðustu viku heimsóttu 434.199 einstakir notendur vefinn. Það þýðir að þessi fjöldi kom í það minnsta einu sinni á vef DV þessa viku. Að meðaltali komu 121.503 á dag hið minnsta einu sinni og auðvitað margir oftar en einu sinni. Þá hefur flettingum fjölgað gríðarlega og eru á virkum dögum tæplega milljón. Þá hefur auglýsingasala verið með besta móti. Samkvæmt tölum Gallup nálgast nú vefur DV vef Morgunblaðsins og Vísis og er orðinn að ákjósanlegum stað fyrir auglýsendur til að ná til fólks.

Fyrra met DV var sett þegar leit að Birnu Brjánsdóttur stóð yfir. Þær tölur voru aldrei birtar enda litu starfsmenn svo á að óviðeigandi væri að hreykja sér af aðsókn í tengslum við það átakanlega og sorglega mál. Sá árangur sem náðist í síðustu viku náðist með því að starfsmenn lögðu allt undir og var aðeins tímaspursmál hvenær nýtt met yrði sett.

Síðustu mánuði hafa orðið miklar breytingar hjá Frjálsri fjölmiðlun sem á og rekur DV. Segja má að á haustmánuðum hafi afraksturinn af þessum breytingum byrjað að koma í ljós. Guðmundur R. Einarsson hannaði nýjan vef og starfar nú náið með ritstjórunum Kristjóni Kormáki og Einari Þór Sigurðssyni sem hafa síðustu ár borið vef DV á herðum sér og sett, ásamt frábærum blaðamönnum, hvert metið á fætur öðru.

Þá flutti Frjáls fjölmiðlun í nýjar og glæsilegar höfuðstöðvar á Suðurlandsbraut 14. Ýmsar aðrar nýjungar hafa átt sér stað. DV byrjaði með sjónvarpsútsendingar á netinu, hefur bætt við nýjum vefhlutum og starfsfólki. Í stuttu máli er Frjáls fjölmiðlun á mikilli siglingu sem sér ekki fyrir endann á.

Hvers konar miðill er DV í dag? DV er eins og áður, frjáls og óháður og tekur á spillingu. DV hefur hins vegar stækkað og er nú eins og hlaðborð þar sem allir geta fundið bita við sitt hæfi. Miðillinn birtir í kringum 120 fréttir á dag. Lítill hluti af þeim er svo kallaðar gular fréttir eða æsifréttir. Þær fréttir verða hins vegar oft áberandi vegna vinsælda. Blaðamenn DV hafa haldið áfram að sinna hlutverki sínu þegar kemur að rannsóknarblaðamennsku og má þar nefna ástandið í Krýsuvík, Biskupsmálið eða að vera leiðandi í umfjöllun um Braggamálið þar sem bruðlað var með almannafé. DV flettir ofan af níðingum, spillingu, þar má finna innihaldsrík helgarviðtöl. Sakamálin eru á sínum stað og Tímavélin hefur slegið í gegn. Á undirsíðum, eins og Fókus, sem mælist hvað eftir annað stærra en Smartland á Mbl.is, má lesa um hvað fræga fólkið hér heima og erlendis er að taka sér fyrir hendur ásamt ýmsu öðru áhugaverðu efni.

Pressan hefur breyst að því leyti að þar er nú helst að finna erlendar fréttir. Á undirsíðu DV, Bleikt, er að finna áhugaverða umfjöllun um konur á öllum aldri og 433.is er á svipuðum slóðum og öll íþróttadeild Morgunblaðsins og mælist oft stærri en Fotbolti.net. Þá er nýr Matarvefur DV orðinn stærri en Matarvefur Morgunblaðsins á örfáum vikum. Lesendahópur Eyjunnar er stór og tryggur enda Eyjan miðstöð pólitískrar umræðu í landinu.

Við, starfsmenn DV, gerum okkur grein fyrir að við getum enn bætt okkur og gert betur. Það ætlum við okkur að gera. Allir hjá Frjálsri fjölmiðlun vilja hins vegar af einlægni þakka fyrir traustið og þennan mikla stuðning.

Takk fyrir okkur!

– –

Við erum DV

Ritstjórn DV er samsett af fjölbreyttum hópi fólks með ólíka menntun og bakgrunn.

Kristjón Kormákur – Aðalritstjóri

Einar Þór Sigurðsson – Aðstoðarritstjóri

Guðmundur R. Einarsson  – markaðs- og þróunarstjóri

Auður Ösp Guðmundsdóttir – Blaðamaður

Hjálmar Friðriksson – Blaðamaður

Lilja Katrín Gunnarsdóttir – blaðamaður

Aníta Estíva – Umsjónarmaður Bleikt

Ari Brynjólfsson – Blaðamaður

Björn Þorfinnsson – Fréttastjóri

Kristján Ágúst Kristjánsson – Umsjónarmaður Pressunnar

Ragna Gestsdóttir – Umsjónarmaður Fókus

Ágúst Borgþór Sverrisson – Blaðamaður

Kristinn Haukur Guðnason – Fréttastjóri

Tómas Valgeirsson – Blaðamaður

Hörður Snævar Jónsson – Umsjónarmaður 433

Kristinn Svanur Jónsson – Tækni- og sjónvarpsmál

Jóhanna Kristín Andrésdóttir – Ljósmyndari

Guðfinna Berg Stefánsdóttir – Umbrot

Eva María Sigurðardóttir – Umbrot

Trausti Salvar Kristjánsson – Umsjónarmaður Eyjunnar

Victor Pálsson – Blaðamaður á 433

Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson – Blaðamaður

Kolbeinn Þorsteinsson – Blaðamaður

Guðni Einarsson – DV Sjónvarp

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum