fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Gunnar Kristinn segist hafa kært Þórey og Elísabet til lögreglu – „Heltust yfir mig óvelkomnar minningar um einelti, barsmíðar og niðurlægingu“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 3. ágúst 2018 13:00

Gunnar Kristinn Þórðarson, formaður Karlalistans og oddviti í Reykjavík.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Kristinn Þórðarson, fyrrverandi formaður Karlalistans, segist á Facebook-síðu sinni hafa kært Þóreyju Guðmundsdóttur og Elísabetu Ýr Atladóttur til lögreglu. Ástæðan er sögð ummæli sem þær létu falla í lokuðum Facebook-hóp. Elísabet Ýr segir í samtali við DV að hún hafi ekkert heyrt frá lögreglu og vilji því að svo stöddu ekki tjá sig um málið.

„Í dag átti ég fund með lögreglunni og lagði fram kæru á hendur sr. Þóreyju Guðmundsdóttur og Elísabetu Ýr Atladóttur. Ég kæri sr. Þóreyju fyrir brot á 229. gr. hegningarlaga, sem segir svo: „Hver sem skýrir opinberlega frá einkamálefnum annars manns, án þess að nægar ástæður séu fyrir hendi, er réttlæti verknaðinn, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 1 ári.“ Að auki kærði ég sr. Þóreyju fyrir brot á 9. gr., sbr, 8. gr. og 8. ml. 2 gr. laga um persónuvernd. Ég kærði Elísabetu jafnframt fyrir brot á 121. gr. hegningarlaga, er segir svo: „Hver sem opinberlega hvetur menn til refsiverðra verka, skal sæta fangelsi allt að 2 árum eða sektum, ef málsbætur eru, nema brot hans varði þyngri refsingu að lögum“,“ skrifar Gunnar Kristinn.

Hann hefur áður sagt að Þórey Guðmundsdóttir, prestur, fyrrverandi sáttarfulltrúi sýslumanns og starfsmaður barnaverndar, hafi fullyrt í athugasemd að hafi hann eytt meirihluta uppvaxtar síns á Barna og unglingageðdeild Landspítalans. Hann segir að hið rétta sé sé hann hafi verið á BUGL í tvo mánuði.

„Þessi ákvörðun sr. Þóreyjar að draga fram 30 ára gamlar upplýsingar um geðheilsu 14 ára unglings sem hafði lent í grófu einelti vegna taugasjúkdóms, hafði meiri áhrif á mig en ég ætlaði. Eins og gengur með mörg börn sem verða fyrir áföllum, hafði ég gleymt mörgu frá þessum tíma, og hélt að það væri til marks um að ég hefði sleppt tökum á þessu tímabili í lífi mínu. Þegar sr. Þórey dró þessar upplýsingar fram, mér til áfellis og niðurlægingar, heltust yfir mig óvelkomnar minningar um einelti, barsmíðar og niðurlægingu. Ég fékk að auki mikla samkennd með þessum unglingi, sem mér fannst lengi, þekkja aðeins af afspurn,“ segir Gunnar Kristinn.

Hann segist hafa kært þær fyrir hönd þeirra sem þurfa að leita á BUGL: „Ég lagði fram kæruna fyrir hönd þessa unglings, sem ég vil nú þekkja betur, en einnig allra unglingsdrengja sem í dag þurfa að taka ákvörðun um hvort þeir eigi að þiggja þjónustu Barna og unglingageðdeildar Landspítalans. Ég hef verið í þeim sporum, og veit að eitt af því sem unglingar velta fyrir sér, er hvort slík ákvörðun muni elta þau fram á fullorðinsár. Ef ekkert verður að gert, -og þessi verknaður Þóreyjar og Elísabetar látinn óátalinn, geta þeir átt von á að embættismenn, -eins og sr. Þórey, -sem einnig hefur starfað sem heilbrigðisstarfsmaður, muni 30 árum síðar draga þær upplýsingar þeim til háðungar og áfellis.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Í gær

Sigur hjá Harvey Weinstein: Dómi gegn honum í New York snúið við

Sigur hjá Harvey Weinstein: Dómi gegn honum í New York snúið við
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“