fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Kerfisstjórar geta tæknilega breytt úrslitum prófkjörs Pírata

Ríkt eftirlit með aðgerðum kerfisstjóranna – Frambjóðendur treysta kerfinu fullkomlega

Björn Þorfinnsson
Föstudaginn 29. september 2017 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Píratar eru eini íslenski stjórnmálaflokkurinn sem mun halda prófkjör í öllum kjördæmum til þess að ákveða hvernig frambjóðendum verður raðað upp á lista flokksins. Skammur tími er til stefnu fram að kosningum og því treystu aðrir flokkar sér ekki til þess að eyða tíma sínum og orku í að skipuleggja umfangsmikil prófkjör. Það sem gerir Pírötum hins vegar kleift að efna til prófkjörs er rafrænt kosningakerfi þeirra sem nýtist vel í slík prófkjör sem og til að kjósa um ýmsar tillögur innan flokksins. Um leynilegar kosningar er að ræða en svo er þó ekki í raun. Slíkt er nánast ógerningur þegar um tölvukerfi er að ræða því einhver þarf að hafa aðgang til þess að lagfæra mögulegar villur eða bregðast við uppákomum. Þeir sem hafa aðgang að kerfinu geta séð hverjir eru búnir að kjósa og hvað þeir kusu. Þá geta þessir aðilar breytt atkvæðum flokksfélaga hugnist þeim það. Þrátt fyrir það bera þeir Píratar, sem DV hafði samband við, fullt traust til kerfisins og segja það alls ekki óöruggara en hefðbundnar pappírskosningar.

Allt hægt ef kunnáttan er fyrir hendi

Höfundar kerfisins eru fimm, Smári McCarthy, Helgi Hrafn Gunnarsson og Björn Leví Gunnarsson, sem allir hafa setið eða sitja á þingi fyrir Pírata, og Tómas Árni Jónsson og Bjarni Rúnar Einarsson. Einn þeirra staðfestir í skriflegu svari til DV að kerfisstjórar hafi víðtækan aðgang til að fikta við kerfið. „Þegar um er að ræða kerfisaðgang að tölvum þá geta viðkomandi einstaklingar gert allt ef þeir hafa kunnáttuna til þess,“ segir þingmaðurinn Björn Leví Gunnarsson og einn höfunda kerfisins. Hann segir að nýlega hafi verið skipt um kerfisstjóra þar sem fyrrverandi kerfisstjóri hafi ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri flokksins. Hann vísað á framkvæmdastjóra flokksins varðandi betri upplýsingar um stöðu mála.

Að þessi möguleiki sé til staðar hugnast ekki öllum. Einstaklingur, sem vill ekki láta nafn síns getið, fullyrðir að framkvæmdin sé ólýðræðisleg. „Þessi vafi gerir það að verkum að kerfið er ónothæft. Það er enginn að segja að þeir sem að hafi þennan aðgang séu að aðhafast neitt misjafnt. Að þetta sé hægt gerir það að verkum að þetta fyrirkomulag á ekkert skylt við heiðarlegt kosningakerfi. Það liggur ekki einu sinni fyrir hverjir það eru sem hafa þennan aðgang og það skapar tortryggni milli þeirra frambjóðenda, sem viti hverjir þetta eru, og þeirra sem hafa ekki hugmynd um það,“ segir viðmælandinn.

Einn kerfisstjóri og annar til vara

Í skriflegur svari frá Erlu Hlynsdóttur, öðrum af framkvæmdastjórum Pírata, kemur fram að á meðan kosning stendur yfir hafi enginn frambjóðandi aðgang að þeim vélum sem hýsi kosningakerfið. „Tveir kerfisstjórar sjá til þess að bregðast við ef eitthvað skyldi fara úrskeiðis. Annar þeirra er Bjarni Rúnar Einarsson, tæknilegur ábyrgðarmaður kosninganna, hinn er Hrafnkell Brimar Hallmundsson og er hann til vara ef Bjarni skyldi forfallast,“ segir Erla.

Sá varnagli er hins vegar sleginn að allar aðgerðir kerfisstjóranna eru rekjanlegar og því geti eftirlitsaðilar gengið úr skugga um að ekkert misjafnt fari fram meðan á kosningum stendur. „Það er haldið utan um hugbúnaðinn sjálfan með breytingastjórnunarkerfi sem heitir „git“. Það er því mjög auðvelt að sjá hvort breytingar hafi verið gerðar á hugbúnaðinum miðað við þá útgáfu sem er gefin út opinberlega, hvenær þær breytingar hafi verið gerðar og hvers eðlis þær eru,“ segir Erla.

Að kosningunum loknum eru atkvæði síðan gerð ónafngreinanleg og þau geymd. „Það er því hægt að endurtelja hvenær sem er með þeirri hugbúnaðarútgáfu sem menn kjósa,“ segir Erla enn fremur.

Aðspurð hvort að allir frambjóðendur í prófkjörum Pírata séu meðvitaðir um hvaða einstaklingar hafi aðgang að kosningakerfinu, segir Erla: „Þetta hefur verið tilkynnt með óformlegum hætti og allir áhugasamir um þessar upplýsingar hafa fengið þær.“

Frambjóðendur treysta kerfinu

DV heyrði hljóðið í nokkrum frambjóðendum flokksins í yfirstandandi prófkjörum. Mjög misjafnt var hvort frambjóðendur vissu hverjir væru kerfisstjórar. Þrátt fyrir það báru allir frambjóðendur fullkomið traust til kerfisins.

„Ég þekki til þessara manna sem eru kerfisstjórar og ég veit að það er fræðilegur möguleiki að fikta eitthvað við kerfið. Til þess þarf aftur á móti mikla þekkingu, það er talsvert mikið vesen og líkurnar á því að það hægi á afgreiðslu eru það miklar að ég hef hverfandi áhyggjur af þessu,“ segir Hans Jónsson, sem býður sig fram í Norðausturkjördæmi. Hans bendir á að í kosningum til Alþingis séu innsigli og eftirliti lengi verið ábótavant. „Að mínu mati er þetta kosningakerfi okkar Pírata að minnsta kosti jafn öruggt og kerfið sem við treystum á við alþingiskosningarnar,“ segir Hans.

„Þetta kosningakerfi fékk eldskírn í fyrra þegar fara þurfti í aðrar kosningar í þessu kjördæmi út af ásökunum um smölun og síðan staðfestingarkosningar í kjölfarið á því. Þá hefur það reynst Pírötum vel við að kjósa um hin ýmsu málefni innan okkar raða,“ segir Ragnheiður Steina Ólafsdóttir, sem býður sig fram í Norðvesturkjördæmi. Hún gekk frekar nýlega til liðs við flokkinn og þekkir ekki til þeirra sem að hafa aðgang að kerfinu. „Ég hef engar áhyggjur af þessu og ber fullt traust til kerfisins. Ég efast ekki um að ég get auðveldlega kallað eftir þessum upplýsingum,“ segir Ragnheiður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Í gær

Sigur hjá Harvey Weinstein: Dómi gegn honum í New York snúið við

Sigur hjá Harvey Weinstein: Dómi gegn honum í New York snúið við
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“