Laust fyrir klukkan tvö í nótt átti sér stað árekstur tveggja bíla í miðborg Reykjavíkur. Ökumaðurinn annars bílsins ók í burtu af vettvang. Hann var hins vegar stöðvaður stuttu síðar, grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Hann reyndist einnig vera sviptur ökuréttindum. Ökumaður hins bílsins var fluttur á Slysadeild.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar ásamt eftirfarandi:
Laust eftir klukkan fjögur í nótt var maður kýldur fyrir utan skemmtistað í miðbænum. Ekki er vitað meira um málið.
Laust fyrir miðnætti varð árekstur á gatnamótum Arnarnesvegar og Salavegar. Báðir bílar óökufærir. Ökumaður og farþegi úr öðrum bílnum voru fluttir á Slysadeild. Meiðsl þeirra eru ekki talin vera alvarleg.
Á fjórða tímanum í nótt var tilkynnt um heimilisofbeldi í Grafarvogi. Karlmaður var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Hann verður yfirheyrður í dag.