fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Allt leim hjá Samfylkingunni – Meira að segja félagsgjaldið

Samfylkingin á útsölu – Framámaður í VG hæðist að kollegum á vinstri vængnum

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 2. maí 2017 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Uhh… er félagsgjaldið í Samfylkingunni í alvörunni 3.990? Meira að segja upphæðin er leim.“ Þetta skrifar Stefán Pálsson, sagnfræðingur og áhrifamaður í Vinstri grænum, á Facbook-síðu sína og gerir stólpagrín að kollegum sínum á vinstrivæng stjórnmálanna. Tilefnið er frétt Fréttablaðsins um félagsgjöld í stjórnmálaflokkum.

Stefán skensar Samfylkinguna.
Glottir við tönn Stefán skensar Samfylkinguna.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Á Vísindavef Háskóla Íslands er útskýrt að verðlagning undir rúnnaðri tölu, 3.990 í stað 4.000 í þessu tilviki, sé svokölluð sálræn verðlagning. Rannsóknir sýni að í huga neytenda virki vara sem verðlögð er undir rúnnaðri tölu mun ódýrari en sú sem er rúnnuð upp í hærri, slétta tölu. Þá megi einnig vera að neytendur tengi lægri verðin frekar við tilboð eða útsölu og séu líklegri til að kaupa vöru sem sé verðlögð á þann hátt. Stefáni finnst augljóslega kúnstugt að ekki séu hreinlega rukkaðar 4.000 krónur en bætir því við að mun svalara hefði þá verið að rukka félagsgjöld upp á 4.001 krónu.

Guðrúnu Jónu, fyrrverandi formaður ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar, finnst Stefán takmarkað fyndinn.
Ekki kát Guðrúnu Jónu, fyrrverandi formaður ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar, finnst Stefán takmarkað fyndinn.

Skens Stefáns fer misvel í fólk og augljóst að ekki hafa allir húmor fyrir því. Þannig skrifar Guðrún Jóna Jónsdóttir, fyrrverandi formaður ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar, eftirfarandi athugasemd á vegg Stefáns: „Hahaa já djöfull er erfitt að vera stjórnmálaflokkur – jiminn vildi að allir stjórnmálaflokkar væru jafn ógó cool og þið; sjiii hvað lífið væri þá gott.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Í gær

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum