fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

„Verðum við eignalausa kynslóðin?“

Ungir Píratar kalla eftir tafarlausum aðgerðum –Trúa ekki á töfralausnir

Kristín Clausen
Þriðjudaginn 14. mars 2017 14:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Staðan á húsnæðismarkaði er grafalvarleg. Stjórnvöld hafa skapað ástandið með lélegri hagstjórn sem einkennist ýmist af lýðskrumskenndum skammtímalausnum eða því að hunsa vandamálin gjörsamlega. Skortur á húsnæði hefur hækkað verð á húsnæði og leigu, en það mætti segja að leigumarkaðurinn hafi farið verst út úr þessu.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ungum Pírötum sem ætla að standa fyrir þverpólitískum pallborðsumræðum um húsnæðismarkaðinn í höfuðstöðvum sínum Tortuga næstkomandi mánudag.

Í tilkynningunni segir:

Ástandið hefur lengi verið slæmt, og hefur hratt farið versnandi, og því spyr ungt fólk sig í dag: Verðum við eignalausa kynslóðin? Verðum við sú kynslóð sem verður sett algjörlega til hliðar og hunsuð? Við segjum nei.

Við köllum eftir tafarlausum aðgerðum til þess að bæta stöðuna á húsnæðismarkaðnum. Það er engin töfralausn, ekkert eitt kosningaloforð sem reddar þessu, það þarf aðgerðir þar sem aðilar frá bæði ríki og sveitarfélögum vinna höndum saman til að bæta ástandið þverpólitískt.

Enn fremur krefjumst við þess að í þeirri vinnu verði þarfir og vilji ungs fólks höfð til viðmiðunar, því hagsmunir þess hafa verið gjörsamlega hunsaðir árum saman. Við þurfum að forðast skammtímalausnir sem miða að því að auka fjölda einbýlishúsa í úthverfum og skapa þess í stað aðstæður þar sem fólk getur valið sér mismunandi tegundir af húsnæði.

þverpólitískar pallborðsumræður

Í ljósi þessara aðstæðna boða Píratar til þverpólitískrar pallborðsumræðu í höfuðstöðvum sínum, Tortuga, þann 20. mars næstkomandi kl 20:00.

Auk þess standa Ungir Píratar, Ung Vinstri Græn, Ungir Jafnaðarmenn og Samband Ungra Framsóknarmanna saman að málfundi um þessi mál í Stúdentakjallaranum þann 15.mars kl 20:00. Á báðum viðburðum munu koma saman stjórnmálamenn og sérfræðingar í málaflokknum til að ræða málin og svara spurningum úr sal.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans