Allir ráðherrar fá að tala á flokksþingi Framsóknarflokksins
Allir ráðherrar Framsóknarflokksins fá að flytja yfirlitsræður á flokksþinginu sem hefst í Háskólabíói á morgun. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, flytur fyrstu ræðuna og hefst hún klukkustund. Við taka ræður ráðherranna. Frá þessu greinir RÚV.
Sigurður Ingi fær 15 mínútur, en hinir ráðherrarnir tíu mínútur hver. Mikið hefur gengið á í herbúðum flokksins að undanförnu. Sigurður Ingi hefur skorað Sigmund Davíð á hólm en stuðningsmenn Sigurðar Inga óttuðust að hann fengi ekki að halda ræðu á þinginu.
Á sunnudag fá allir frambjóðendur til formanns að halda framboðsræður.