fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Flugdólgur hótaði farþega

Auður Ösp
Föstudaginn 2. september 2016 14:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglunni á Suðurnesjum var í gær tilkynnt um ölvaðan farþega um borð í flugvél sem var að koma frá Baltimore. Hafði maðurinn neytt áfengis úr flösku sem hann var með í fluginu en það er stranglega bannað samkvæmt reglum flugfélaga.

Flugvél WOW Air frá Baltimore lenti á Keflavíkurflugvelli um sjö leytið í gærmorgun en í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum segir að maðurinn hafi verið með leiðindi um borð, bæði hafi hann verið dónalegur við flugáhöfnina og hótað farþega sem sat fyrir framan hann.

Lögregla færði maninn á varðstofu þar sem rætt var við hann. Róaðist hann þá, kvaðst sjá eftir hegðun sinni og bað afsökunar á henni. Við svo búið var hann frjáls ferða sinna.

Grunsemdir vöknuðu vegna ljósmynda

Lögreglan á Suðurnesjum handtók einnig í vikunni flugfarþega sem reyndi að ferðast á stolnu vegabréfi í gegnum landamæri. Grunur um þetta vaknaði þegar ljósmyndir sem teknar voru af manninum voru bornar saman við vegabréfið. Hann viðurkenndi að hafa komist yfir skilríkin með óheiðarlegum hætti.

Mál mannsins fór í hefðbundið ferli og hefur hann verið úrskurðaður í Héraðsdómi Reykjaness í gæsluvarðhald til 7, september næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart