Bágborið ástand Norðfjarðarflugvallar setur hömlur á sjúkraflug – Segir hverja mínútu skipta máli: „Svona veikindi spyrja ekki um stund og stað“


„Við búum í nútímasamfélagi þar sem við teljum læknisþjónustu til grunnþjónustu sem allir hafa aðgang að. Það er auðvitað fáránlegt að maður eigi þurfa að velja sér búsetu út frá aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Ég á að geta valið mér búsetu hvar sem er, enda á heilbrigðisþjónusta að teljast til grunnstoða samfélagsins, rétt eins og skólar,“
segir Brynja Björg Vilhjálmsdóttir, íbúi á Neskaupsstað, en flytja þurfti eins árs gamla dóttur hennar á sjúkrahús með hraði í fyrradag eftir að hún fékk síendurtekin flogaköst. Það reyndist þó enginn hægðarleikur vegna ástandsins á Norðfjarðarflugvelli en erfitt hefur reynst að nýta flugvöllinn undir sjúkraflug undan misseri. Þá bendir Brynja einnig á að lokun NA/SV neyðarbrautar Reykjavíkurflugvallar komi óumdeilanlega til með að þrengja að þeim landsmönnum sem treysta verði á sjúkraflug.
Fjallað hefur verið um ástand Norðfjarðarflugvallar á Neskaupsstað undanfarin misseri, en flugvöllurinn er í eigu ríkissjóðs og er rekinn af Isavia ohf. Hingað til hefur völlurinn verið malarvöllur og ástand hans farið versnandi milli ára. Hefur hann því ekki nýst almennilega sem sjúkraflugvöllur og valdið töfum á flutningi sjúklinga til Reykjavíkur til frekari læknismeðferðar, en fjórðungssjúkrahúsið er staðsett á Neskaupsstað og sinnir meðal annars allri bráðaþjónustu á Austurlandi. Hefur því þurft að beina helmingi sjúkraflugs til Egilsstaða og aka með sjúklinga yfir á Egilstaðaflugvöll sem er í um 75 kílómetra fjarlægð. Kallar það á tæplega klukkustundar langa akstursferð við misgóð veðurskilyrði. Þá hefur Oddsskarð og Oddskarðsvegurinn reynst varasamur á veturna.
Mbl.is greindi frá því þann 22. ágúst síðastliðinn að Innanríkisráðuneytið og Fjarðabyggð hefðu undiritað samkomulag sín á milli um fjármögnun endurbóta á flugvellinum og felast þær í lagningu á bundnu slitlagi. Mun ríkið greiða 82 milljónir af heildarkostnaði verksins og Fjarðabyggð 76 milljónir, en Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað og Síldarvinnslan hf, munu í sameiningu leggja 50 milljónir til verksins.
Fram kemur í tilkynningu að með endurbótunum verði flugvellinum gert kleift að sinna þýðingamiklu öryggishlutverki sínu en það sem er af þessu ári hefur í 47 af 77 tilvikum reynst ógerlegt að lenda sjúkraflugvélum á Norðfjarðarflugvelli vegna sjúkraflutninga til Neskaupstaðar og frá.
Brynja vekur athygli í málinu í færslu á Facebook sem fengið hefur sterk viðbrögð, en yfir 200 manns hafa deilt færslunni er þetta er ritað. Í samtali við blaðamann DV segir Brynja mikilvægt að vekja athygli á því óréttlæti sem blasi við landsbyggðarfólki þegar kemur að jöfnu aðgengi að heilbrigðisþjónustu, en þegar bráðatilfelli koma upp geti hver einasta mínúta skipt sköpum. Þannig hafi það verið í tilviki dóttur hennar, Júlíönnu Pollý Rós, 1 árs, í gær en hún var greind með ungbarnaflogaveiki 6 mánaða gömul. Flogin hafi yfirleitt stöðvast af sjálfu sér.
„Hún hefur þó aldrei átt eins slæman dag og þarna. Þetta var í fyrsta skipti sem hún fékk svona mörg flog í hrönnum og það var þess vegna ljóst að það þyrfti að grípa inn í strax. Þegar manneskja er í svona flogkasti sem þarf að stoppa þá er hver einasta mínúta mikilvæg. Og svona veikindi spyrja ekki um stund og stað.“
Mæðgurnar voru því fluttar í flýti frá sjúkrahúsinu á Neskaupsstað til Egilsstaða og þá tók við sjúkraflug til Akureyrar. Segir Brynja að biðin hafi svo sannarlega tekið á taugarnar.
„Þegar svona kemur upp þá er ekki laust við að maður opni augun fyrir því að ekkert má út af bregða í aðstæðum sem þessum. Ungt barn sem fær slæmt flogakast sem erfitt getur reynst að stoppa getur orðið fyrir varanlegum skaða á heila og aldrei orðið samt á ný sé ekki brugðist rétt og hratt við.
Ég áttaði mig á að ég var skyndilega að upplifa það að vera sjálf stödd í enn einu dæminu um að við verðum að tryggja að allir landsmenn hafi jafnan aðgang að því að komast skjótt undir hendur lækna sem hafa þekkingu og þau umboð sem þarf til þess að koma okkur til hjálpar þegar þörf krefur.
Ég varð því ansi hugsi á leiðinni í gær þar sem við þurstum í sjúkrabíl frá Neskaupstað til Egilsstaða þar sem vélin beið og annar sjúkraflutningamaðurinn segir. „Það verður munur þegar síldarvinnslan verður búin að malbika flugvöllinn heima og við sleppum við þennan spotta.“ Þessi spotti sem um ræðir er um klukkutíma leið og kannski ekki stórvægilegt haft sem slíkt en þegar um ræðir aðstæður sem þessar þá viltu ekki vera staddur einhversstaðar á þessari leið í aðstæðum sem erfitt er að stjórna,“ ritar Brynja jafnframt í færslu sinni.
„Annað í þessu, hafi leið okkar legið annað en norður, hversu löng leið er þá á spítala frá flugvelli nú þegar neyðarbrautinni hefur verið lokað? Ekki það að veðuraðstæður voru eins og best verður á kosið í gær- þess vegna voru engar hindranir í veginum. En hvað ef svo væri ekki? Á í alvöru að gera allt sem fólki er framast unnt til þess að halda fólki utan að landi sem lengst frá læknisþjónustu í neyð?“
Brynja bætir þó við að skjót og fagmannleg viðbrögð sjúkraflutningamanna hafi skipt sköpum.
„Þær 26 hendur sem komu að því að flytja barnið mitt á milli staða í gær eiga mestu þakkir skildar enda fagmenn fram í fingurgóma og algjörir klettar í hafi þegar mikið mæðir á og fyrir þá erum við þakklát. Þess ber að geta að þetta voru einungis þær hendur sem við sáum á þessari leið. Þær eru miklu fleiri í raun.
Það er samt svo að maður kemst ekki hjá því að spyrja sig hversvegna að hafa hlutina flókna þegar þeir geta verið einfaldir ef við værum bara að horfa til þess að tryggja öllum landsmönnum jafnan aðgang að því sem við teljum til grunnþjónustu.“
Í samtali við blaðamann segir Brynja ástand Júlíönnu litlu þó vera gott eftir atvikum en hún er enn undir eftirliti á sjúkrahúsinu. Flogin komi í bylgjum og því mikilvægt að fylgst sé með. Brynja kveðst jafnframt setja spurningamerki við að það þurfi tilkomu einkaaðila til að koma flugvellinum á Neskaupsstað í lag, enda sé um að ræða sjálfsagða þjónustu við íbúa.