fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fréttir

„Tíminn er núna“

Álfrún Perla og Árni Freyr skrásetja manngerða hella á ættaróðali Álfrúnar – Liður í að fjölga áningarstöðum ferðamanna á svæðinu

Björn Þorfinnsson
Laugardaginn 16. júlí 2016 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er afar mikilvægt að skrásetja söguna núna enda eru margir þeirra sem þekkja hana best komnir á áttræðisaldur. Tíminn er núna. Við gripum tækifærið því fegins hendi þegar það kom upp enda á ég rætur mínar að rekja til þessa staðar og ólst upp við sögur af þessum mannvirkjum,“ segir Álfrún Perla Baldursdóttir, sem ásamt Árna Frey Magnússyni, kærasta sínum, skrásetur sögu manngerðra hella á landi Ægissíðu í Rangárþingi ytra í sumar. Verkefnið er til komið að frumkvæði forsvarsmanna Stracta-hótelsins á Hellu sem töldu að hagur væri af fleiri áhugaverðum viðkomustöðum fyrir ferðamenn á svæðinu. Þeir höfðu því samband við afa Álfrúnar Perlu, sem býr á Ægissíðu, varðandi aðgengi ferðamanna að hellunum og þannig fór boltinn að rúlla.

Hér sést Árni Freyr standa í Fjárhelli en hellarnir eru margir hverjir stórir og rúmgóðir.
Fjárhellir Hér sést Árni Freyr standa í Fjárhelli en hellarnir eru margir hverjir stórir og rúmgóðir.

Draumurinn að búa til safn

Forsvarsmenn Stracta fengu 1,5 milljóna króna styrk til þess að vinna að endurbótum á hellunum og tryggja varðveislu þeirra en síðan fengu Álfrún Perla og Árni styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna til þess að skrásetja sögu hellanna. „Markmiðið er að búa til hljóðleiðsögn um fimm hella sem heppilegir eru til sýningar og draumurinn er að opna safn á jörðinni. Alls eru hellarnir tólf, svo vitað sé, á landi Ægissíðu. Einungis tveir þeirra eru notaðir enn þann dag í dag og eru það Skagahellir og Búrhellir og eru þeir báðir notaðir sem búr og geyma aðallega kartöflur,“ segir Álfrún Perla. Að öðru leyti hafa hellarnir ekki verið í notkun frá 1975 og því voru þeir farnir að grotna niður að einhverju leyti út af veðrun. Von Álfrúnar Perlu er að verkefnið verði til þess að varðveisla hellanna verði tryggð.

Skrásetja sögu manngerðra hella á ættaróðali Álfrúnar Perlu í sumar. Markmiðið er að gera ferðamönnum kleift að skoða hellana með hljóðleiðsögn sem og að tryggja varðveislu þeirra.
Álfrún Perla og Árni Freyr Skrásetja sögu manngerðra hella á ættaróðali Álfrúnar Perlu í sumar. Markmiðið er að gera ferðamönnum kleift að skoða hellana með hljóðleiðsögn sem og að tryggja varðveislu þeirra.

„Þú skrifar ekkert sérstakan kafla um fjósið þitt“

Sannað er að hellarnir eru manngerðir og eru rúmlega 200 slík mannvirki á Suðurlandi. Slíkir hellar þekkjast ekki í Skandinavíu en eru vel þekktir í Írlandi og víðar í Evrópu og því er innblásturinn mögulega kominn þaðan. „Það er munnmælasaga í sveitinni að papar hafi hoggið út hellana. Sú hugmynd kviknaði á 19. öld hjá Einari Benediktssyni. Í einum hellinum, Fjóshelli, er kross í botni hans og þaðan kemur mögulega þessi tenging við kristni og papa. Pabbi minn, Baldur Þórhallsson prófessor, ólst upp við þessar sögur og er alveg sannfærður um að þær séu sannar,“ segir Álfrún Perla og hlær. Lítið er til af skrásettum heimildum um hellana en þær elstu eru frá 12. öld. Tilfinning Álfrúnar Perlu er sú að hellarnir hafi alltaf verið hluti af búháttum á Suðurlandi og því hafi þeir ekki þótt merkilegir sem slíkir. „Þú skrifar ekkert sérstakan kafla um fjósið þitt, þetta er bara fjós,“ segir Álfrún Perla kímin.

Hún segir að skrásetningarstarfið hafi leitt ýmislegt í ljós sem bendir til þess að hellarnir séu frá landnámi. „Ég fann frásögn í bók þar sem kom fram að þegar íbúðarhús á jörð Ægissíðu 2 var byggt árið 1966 þá hafi komið í ljós langeldur og landnámsskáli. Svo virtist sem skálinn hefði verið tengdur einum hellinum. Afi hafði ekki hugmynd um þetta en konan sem byggði húsið ásamt fjölskyldu sinni mundi vel eftir því. Þetta þótti bara ekkert merkilegt á sínum tíma,“ segir Álfrún Perla.

Innst í Fjósahelli má sjá þetta trúartákn og telja sumir að þar sé komin tenging við papa.
Krossmark Innst í Fjósahelli má sjá þetta trúartákn og telja sumir að þar sé komin tenging við papa.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag
Fréttir
Í gær

Sautján ára deila um jarðir á Snæfellsnesi á leið fyrir dóm – Maður sem lést fyrir hálfri öld er einn eigenda

Sautján ára deila um jarðir á Snæfellsnesi á leið fyrir dóm – Maður sem lést fyrir hálfri öld er einn eigenda
Fréttir
Í gær

Pípari kenndi skólpi um kókaínið í blóðinu

Pípari kenndi skólpi um kókaínið í blóðinu
Fréttir
Í gær

Segist ítrekað rændur í Bónus nema hann afgreiði sig sjálfur og krefst endurgreiðslu – „Takk má leggja inn á reikning“

Segist ítrekað rændur í Bónus nema hann afgreiði sig sjálfur og krefst endurgreiðslu – „Takk má leggja inn á reikning“
Fréttir
Í gær

Íranir sagðir hafa 48 tíma til að bjarga sér – Annars mæta Bandaríkin til leiks

Íranir sagðir hafa 48 tíma til að bjarga sér – Annars mæta Bandaríkin til leiks