fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Innanríkisráðherra fær glæsilegan BMW-jeppa

Ráðuneytið skiptir út níu ára gömlum Benz – Kaupverðið 9,1 milljón króna

Ritstjórn DV
Föstudaginn 27. maí 2016 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gengið hefur verið frá kaupum á nýrri ráðherrabifreið fyrir Ólöfu Nordal innanríkisráðherra. Er ráðherra nú kominn á glæsilegan BMW X5-jeppa sem leysir af hólmi níu ára gamlan Mercedes-Benz ráðherrabíl innanríkisráðuneytisins sem var mikið ekinn og þarfnast lagfæringa. Kaupverðið á nýja ráðherrabílnum nemur 9.150.000 króna og var hann afhentur fyrr í þessum mánuði.

Þetta er fimmta ráðherradrossían sem endurnýjuð er á núverandi kjörtímabili en áður höfðu forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og utanríkisráðherra fengið nýjar og glæsilegar bifreiðar. Kaupverð þessara fimm nýju ráðherrabifreiða nemur rúmlega 57 milljónum króna. Á móti hafa fengist um 9 milljónir króna með sölu á þeim fjórum bifreiðum sem áður höfðu verið endurnýjaðar.

Gamli þarfnast lagfæringa

Gamla ráðherrabifreið innanríkisráðuneytisins, Mercedes-Benz E 280 CDI 4Matic, var keypt ný árið 2007 fyrir það sem þá hét dómsmála- og mannréttindaráðuneytið.

Mercedes-Benz E280 bifreiðin hafði þjónað ráðherrum frá 2007. Bíllinn lítur vel út en þarfnast einhverra lagfæringa.
Gamli á uppboð Mercedes-Benz E280 bifreiðin hafði þjónað ráðherrum frá 2007. Bíllinn lítur vel út en þarfnast einhverra lagfæringa.

Mynd: Bílauppboð.is

Eins og venja er annast Ríkiskaup nú söluna á gömlu bifreiðinni og er hún nú auglýst á uppboðsvefnum Bílauppboð.is. Þar kemur fram að bifreiðin sé ekin rúma 220 þúsund kílómetra en hafi sem ráðherrabifreið alltaf fengið gott viðhald enda lítur hún afar vel út. Hins vegar þarfnist hún lagfæringa. Bremsur þarf að fara að laga og líklegt er talið að skipta þurfi um bremsuklossa. Búið sé að skipta um loftpúðadempara að framan vinstra megin. Bifreiðin var skráð á uppboðsvefinn á þriðjudagskvöld og því enn ekki seld.

Glæsilegur BMW-jeppi

Nýi ráðherrajeppinn er hins vegar hinn glæsilegasti. Um er að ræða BMW X5 40e, sem Plug-in hybrid og er því knúinn áfram af samspili bensínvélar og rafmagns. Af þeim sökum eyðir hann aðeins um 3,3 lítrum á 100 kílómetra auk þess sem CO2 mengun hans er aðeins 78g/km.

Þrátt fyrir að vera eyðslugrannur og umhverfisvænn þá er hann engu að síður kraftmikill. Þessi sjálfskipti jeppi er 313 hestöfl, með tog upp á 450Nm og er 6,8 sekúndur upp í 100 kílómetra hraða samkvæmt upplýsingum frá umboði. Ráðherrabíllinn stenst því vel þær öryggis-, umhverfis- og gæðakröfur sem gerðar eru til ráðherrabifreiða. Oftast er miðað við að CO2 mengun skuli ekki fara yfir 170g/km, eldsneytiseyðsla eigi að vera undir 7 lítrum á hundraði í blönduðum akstri, tog ekki undir 400 Nm og viðbragð bifreiðar frá 0–100 km/klst. sé ekki yfir 8 sekúndum.

Nýi ráðherrajeppinn var keyptur þann 11. maí síðastliðinn í kjölfar örútboðs þar sem tilboði BL ehf. upp á rúma 9,1 milljón króna var tekið.

Ráðherrar hafa enga aðkomu

Rétt er að benda á að ráðherrar hafa enga aðkomu að þeirri ákvörðun að hefja innkaupaferli né ákvörðun um hvaða tilboði er tekið. Það er á hendi embættismanna viðkomandi ráðuneyta. Ákvörðun um kaup á ráðherrabílum er samkvæmt upplýsingum sem DV fékk frá ráðuneytum á sínum tíma tekin á grundvelli faglegra og rekstrarlegra forsendna. Þá vegi öryggisþátturinn þungt. Þá er líka litið til þess að um viðhafnarbifreið er að ræða og er miðað við kröfur frá embætti Ríkislögreglustjóra um slíka bíla.

Neðst í fréttinni geta áskrifendur séð fleiri myndir af þessum nýja og glæsilega jeppa.


Fyrir kaupin á bifreið innanríkisráðuneytisins höfðu fjórar ráðherrabifreiðar verið endurnýjaðar á kjörtímabilinu.
Dýrar drossíur Fyrir kaupin á bifreið innanríkisráðuneytisins höfðu fjórar ráðherrabifreiðar verið endurnýjaðar á kjörtímabilinu.

Ráðherrabílaflotinn endurnýjaður

Þessir bílar hafa verið keyptir á kjörtímabilinu

Ráðherra Tegund bifreiðar Kaupverð Kaupár
Utanríkisráðherra Land Rover Discovery 13.229.810 2014
Fjármála- og efnahagsráðherra Mercedes Benz E250 9.587.850 2014
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Land Cruiser 150 VX 12.699.900 2015
Forsætisráðherra Mercedes Benz S-350 BlueTec Sedan 12.785.000 2015
Innanríkisráðherra BMW X5 40e xDrive 9.150.000 2016

Fimm nýir bílar keyptir fyrir: 57,4 milljónir króna.

Fjórir gamlir bílar seldir fyrir: 9 milljónir króna.

Mismunur: 48,4 milljónir króna


Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Í gær

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum