Guðni Th. Jóhannesson segir útilokað að stjórnin haldi


„Ég er furðu lostinn að Sigmundur Davíð skyldi ganga á fund forseta og biðja um þingrof án þess að hafa, að því er virðist, leitað samþykkis hjá hinum flokkunum og í eigin röðum.“ Þetta segir Guðni Th. Jóhannesson stjórnmálafræðingur í samtali við DV.
Hann segir að þetta sé taktík sem hann átti sig ekki á og að forsetinn hafi gert það eina rétta í stöðunni, að synja beiðni forsætisráðherrans.
Guðni segir við DV að ekki séu bein fordæmi fyrir þessari atburðarrás. Árið 1974 hafi Ólafur Jóhannesson gengið á fund forseta og leitað heimildar þingrofs, sem forseti veitti honum, til að afstýra því að vantraust yrði lagt fram á þáverandi stjórn. Þá hafi aðstæður verið ólíkar því sem nú er.
„Í samteypustjórn geta menn ekki gengið svona fram,“ segir Guðni um framferði Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra. Hann útilokar að stjórnarsamstarfið lifi þessa atburðarrás af. „Nei, það er búið. Spurningin er bara hvernig endalokin verða.“