Tvær milljónir króna hafa safnast á skömmum tíma í kvöld – Þurfa að kaupa klippitölvu


„Ég er bara orðlaus yfir þessum stuðningi,“ segir blaðamaðurinn og stofnandi Reykjavík Media, Jóhannes Kr. Kristjánsson. Frá því Karolina fund-söfnun var sett í gang fyrr í kvöld, hafa safnast um tvær milljónir króna. Sú tala fer, þegar þetta er skrifað, hækkandi með hverri mínútunni.
Reykjavík Media, í samstarfi við Kastljós, birti fyrr í kvöld ítarlega fréttaskýringu um tengsl íslenskra stjórnmálamanna við aflandsfélög.
Fram hefur komið að RÚV greiddi 1,5 milljóna króna greiðslu fyrir sýningarréttinn. Leiða má líkur að því að sú greiðsla hafi hrokkið skammt því vinna við þátttinn hefur staðið yfir í um tíu mánuði.
Jóhannes segir í samtali við DV að söfnunarsíðan hafi ekki átt að fara í loftið í kvöld. Einhver undirbúningsvinna hafi farið fram en ekki hafi staðið til að setja síðuna í loftið fyrr en um hægðist. „Þetta átti að fara af stað í næstu viku eða eitthvað,“ sagði Jóhannes við DV nú laust fyrir miðnætti, en þá sátu þeir Aðalsteinn Kjartansson enn á skrifstofu Reykjavík Media, eftir annir dagsins.
Yfir 300 manns hafa lagt Reykjavík Media lið í kvöld. „Svona söfnun var ekkert í huga mér í dag en svo var bara svo mikill þrýstingur,“ segir hann. Hann sé orðlaus af þakklæti en fyrir liggi að fyrirtækið þurfi meðal annars að kaupa tölvu til að klippa myndbönd. Hana hafi þeir haft að láni til þessa. Styrkir komi því sannarlega að góðum notum.
Frétt uppfærð kl. 07.37
Nú þegar hafa safnast um 2,8 milljónir króna á Karolina fund.