Lokað á Ísafirði – Blíðskaparveður á Akureyri
Ekki er útlit fyrir að skíðasvæði Ísafjarðar verði opið í dag þar sem mikill vindstrengur gengur yfir Vestfirði þennan morguninn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsvarsmönnum skíðasvæðisins í morgun. Þar segir að staðan verði metin aftur um hádegið.
Blíðskaparveður er fyrir norðan og er skíðasvæðið í Hlíðarfjalli opið frá klukkan 10 til 16. Þá er skíðasvæðið á Dalvík einnig opið í dag.
Lokað er í Bláfjöllum í dag þar sem mikill vindur og skafrenningur er á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birtist á Facebook-síðu skíðasvæðisins fyrir skemmstu.
Skíðasvæðið í Skálafelli verður opið í dag frá klukkan 10 til 17.