Handtökurnar í Gálgahrauni voru lögmætar
Hæstiréttur hafnaði í dag bótakröfu nímenninganna sem handteknir voru vegna mótmæla í Gálgahrauni. Þeirra á meðal er Ómar Ragnarsson fjölmiðlamaður.
Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, sem komst að sömu niðurstöðu í fyrra. Hæstiréttur segir að lögreglu hafi verið heimilt að veita Vegagerðinni aðstoð til að framkvæmdirnar gætu haldið áfram. Ljóst væri að fólkið færi ekki að fyrirmælum lögreglu og hafi þannig leitast við að koma í veg fyrir lögmæta vegagerð.
Níumenningarnir voru dæmdir til að greiða 100 þúsund krónur hver, í málskostnað.