Hugmyndasamkeppni um Gufunessvæðið
Gufunes verður ventill fyrir ungt fólk sem kýs grósku og borgarbrag í stað úthverfa og þar verður blönduð byggð fyrir íbúðir, smærri atvinnurekstur, skapandi iðnað, menningu, menntun, sýningar og atburði. Þá verða ferjusamgöngur á milli Gufuness og miðborgarinnar þar sem meðal annars er gert ráð fyrir að fólk geti tekið með sér reiðhjól.
Þetta er samkvæmt vinningstillögu í hugmyndasamkeppni Reykjavíkurborgar um Gufunessvæðið, en verðlaunin voru afhent í Spönginni í Grafarvogi á fimmtudag. Sex tillögur bárust og bar arkitektastofan jvantspijker + Felixx sigur úr býtum. „Vinningstillagan sýnir einstaklega vandaða vinnu og tekst það vandasama verk að vera frumleg á sama tíma og hún fer vel með anda staðar. Þetta er sannfærandi og raunhæf tillaga með skýra heildarhugmynd,“ segir í umsögn dómnefndar um vinningstillöguna.
Það var í mars 2013 sem borgarstjóri skipaði hóp til að fjalla um tækifærin í Gufunesi. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að áframhaldandi skipulagsvinna á svæðinu sé ekki bundin við þátttakendur né verðlaunahafa eingöngu.
Talsverðar breytingar á starfsemi í Gufunesi hafa þegar verið ákveðnar. Reykjavík Studios hefur keypt gömlu Áburðarverksmiðjuna og hyggst reka þar kvikmyndaver. Þá hefur verið samið við Íslensku gámaþjónustuna um að flytja starfsemi sína úr Gufunesi upp á Esjumela.