fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Hagar að kaupa Lyfju af ríkinu fyrir um sjö milljarða

Smásölurisinn átti hæsta boð í hlut ríkisins – Ákveðið að ganga til viðræðna við Haga

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 15. nóvember 2016 08:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hagar áttu hæsta skuldbindandi kauptilboð í allt hlutafé Lyfju, sem er alfarið í eigu íslenska ríkisins, og ákvað fyrirtækjaráðgjöf Virðingar í lok síðustu viku að ganga í kjölfarið til viðræðna við smásölurisann. Gangi viðskiptin eftir, sem veltur meðal annars á samþykki Samkeppniseftirlitsins, þá gerir tilboð Haga ráð fyrir því að kaupverðið fyrir þessa stærstu lyfjakeðju landsins verði í kringum sjö milljarðar króna, samkvæmt heimildum DV.

Lyfja var á meðal þeirra fjölmörgu eigna sem voru framseldar til íslenskra stjórnvalda um síðastliðin áramót sem hluti af stöðugleikaframlagi kröfuhafa föllnu bankanna en hlutafé Lyfju var áður í eigu slitabús Glitnis. Skömmu eftir að stjórn Lindarhvols, umsýslufélags sem var falið að halda utan um tugmilljarða stöðugleikaeignir íslenska ríkisins, samdi við Virðingu um að vera ráðgjafi við söluferlið var Lyfja auglýst til sölu í byrjun september fyrr á þessu ári. Mikill áhugi reyndist á félaginu sem endurspeglaðist í því að vel á annan tug fjárfesta skiluðu inn óskuldbindandi tilboðum í Lyfju áður en frestur til þess rann út 5. október. Eignarhlutur ríkisins í Lyfju er verðmætasta einstaka eignin í formi hlutafjár í félögum og fjárfestingarsjóðum sem er í umsýslu Lindarhvols.

Í tilkynningu frá Högum til Kauphallar Íslands mánudaginn 7. nóvember í síðustu viku kom fram að félagið hefði sett fram skuldbindandi kauptilboð í alla hluti í Lyfju. Tilteknir fjárfestar höfðu verið teknir áfram í annan hluta söluferlisins og rann frestur þeirra til að skila inn slíku tilboði út þann dag. Þá sagði í tilkynningu Haga að eftir að skuldbindandi tilboð bærust í Lyfju þá myndi seljandi ákveða hvort halda ætti áfram með söluferlið, með einum eða öðrum aðilum. Niðurstaðan reyndist sem fyrr segir sú að ganga til kaupviðræðna við Haga þar sem félagið hafi verið með hæsta tilboðið í Lyfju.

Tíu sinnum EBITDA

Skuldbindandi kauptilboð Haga var gert með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og að samþykki Samkeppniseftirlitsins fengist fyrir viðskiptunum. Hagar, sem reka meðal annars verslanir undir merkjum Bónuss og Hagkaupa, eru með markaðsráðandi stöðu á dagvörumarkaði. Í því ljósi er talið fullvíst að Samkeppniseftirlitið muni gefa sér góðan tíma, líklega fjóra til sex mánuði, áður en hægt verður að taka afstöðu til viðskiptanna. Í fyrrnefndri tilkynningu Haga til Kauphallarinnar var tekið fram að verði af viðskiptunum mætti gera ráð fyrir að gengið yrði frá þeim um mitt næsta ár.

Lyfja er stærsta keðja apóteka og heilsuverslana á Íslandi en samtals rekur félagið 39 apótek, útibú og verslanir, um land allt undir merkjum Lyfju, Apóteksins og Heilsuhússins. Hagnaður samstæðunnar nam 254 milljónum króna á síðasta ári en velta fyrirtækisins var tæplega níu milljarðar króna. EBITDA-hagnaður Lyfju á árinu 2015 – afkoma fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir – nam 595 milljónum króna. Samkvæmt upplýsingum DV áætla stjórnendur Lyfju hins vegar að EBITDA félagsins fyrir núverandi rekstrarár hækki um hundrað milljónir króna og verði því samtals um 700 milljónir. Skuldbindandi tilboð Haga í Lyfju, að sögn þeirra sem þekkja vel til, gerir ráð fyrir því að hlutafé lyfjakeðjunnar sé keypt miðað við um tífalda EBITDA-afkomu félagsins sem þýðir að smásölurisinn muni borga um sjö milljarða króna fyrir Lyfju. Það er umtalsvert hærra verð en Lyfja var metin á í bókum Glitnis þegar hlutafé félagsins var framselt til ríkisins. Samkvæmt heimildum DV var hluturinn í Lyfju aðeins bókfærður á um tvo milljarða króna og því mun fyrirhuguð sala á þessari tilteknu eign skila ríkinu um fimm milljörðum króna meira í stöðugleikaframlag en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Þeir Steinar Þór Guðgeirsson, hæstaréttarlögmaður og ráðgjafi Seðlabanka Íslands, og Haukur C. Benediktsson, forstöðumaður Eignasafns Seðlabanka Íslands (ESÍ), hafa verið fulltrúar stjórnvalda í stjórn Lyfju eftir að félagið komst í hendur ríkisins fyrr á þessu ári.

Sterk staða Haga

Fjárhagsstaða Haga er afar sterk og hefur góð afkoma á undanförnum árum meðal annars verið nýtt til að greiða hratt niður skuldir félagsins. Í lok síðasta rekstrarárs, sem lauk í febrúar á þessu ári, námu vaxtaberandi skuldir smásölurisans aðeins rúmlega 700 milljónum króna og höfðu þá lækkað um nærri átta milljarða króna á aðeins fjórum árum. Félagið er því afar vel í stakk búið til að ráðast í fjárfestingar en eiginfjárhlutfall þess er um 55%. Við lok viðskipta í Kauphöllinni í gær nam markaðsvirði Haga tæplega 62 milljörðum króna. Eigendur Haga eru að langstærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir, með samanlagt meira en 50% hlut í félaginu, en enga einkafjárfesta er að finna á lista yfir tuttugu stærstu hluthafa félagsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt