fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Ný könnun MMR: Sjálfstæðisflokkur stærstur – Píratar ekki langt undan

Könnun MMR þremur dögum fyrir kosningar

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 26. október 2016 12:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt könnun MMR sem fram fór dagana 19. til 26. október mælist Sjálfstæðisflokkurinn stærstur flokka. Fylgi flokksins mælist nú 21,9 prósent nú þegar þrír dagar eru til kosninga. Í könnun sem Fréttablaðið birti í morgun mældist flokkurinn með 25,1 prósents fylgi.

Píratar koma næst á eftir með 19,1% fylgi í könnun MMR og Vinstri-grænir þar á eftir með 16,0% fylgi. Í könnun Fréttablaðsins voru Píratar með 20,3 prósenta fylgi og Vinstri grænir með 16,4 prósenta fylgi.

Framsóknarflokkurinn mælist með 10,0 prósenta fylgi en í síðustu könnun MMR, sem lauk 13. október síðastliðinn, var fylgi flokksins 9,2 prósent. Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,3% en mældist 10,2% í síðustu könnun MMR. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 8,8%, samanborið við 8,2% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist 7,6% en mældist 9,0% í síðustu könnun og fylgi Flokks fólksins mældist 3,4%, samanborið við 1,2% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.

Í könnuninni var einnig spurt um stuðning við ríkisstjórnina. Hann mælist nú 33,3 prósent en stuðningur við ríkisstjórnina mældist 34,1 prósent í síðustu könnun.

Svarfjöldi í könnun MMR var 981 og var úrtakið valið handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR. Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegla lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma. Könnunin var sem fyrr segir framkvæmd 19. til 26. október.

Niðurstöður MMR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum