Starfsmaður Seðlabankans segir það rangt sem Davíð Oddson hefur haldið fram, að símtal Davíðs við Geir hafi verið hljóðritað fyrir tilviljun.


Í tilkynningu á Facebook-síðu Kastljóss kemur fram að þáttur kvöldsins muni snúast um endurrit úr símtali þeirra Davíðs Oddssonar og Geirs H Haarde og eiðsvarinn vitnisburður starfsmanns Seðlabankans sem var vitni að símtalinu. Fullyrt er að umfjöllunin muni varpa nýju ljósi á aðdraganda umdeildrar 75 milljarða króna lánveitingar ríkisins til Kaupþings sama dag og neyðarlögin voru sett.
Í tilkynningunni segir að í þættinum muni koma fram ítarlegri upplýsingar en áður um hvað forsætisráðherra og Seðlabankastjóra fór á milli í hádeginu þann 6. október 2008, sama dag og neyðarlögin voru sett. Svo og áhyggjur og vísbendingar um að upplýsingum um hvað til stóð hefði verið lekið út úr Seðlabankanum.
Þar segir Geir H Haarde að enginn forsætisráðherra – sama hver það sé – eigi að sæta því að embættismenn ríkisins hljóðriti samtal við hann án hans vitundar. Starfsmaður Seðlabankans segir það rangt sem Davíð Oddson hefur haldið fram, að símtal Davíðs við Geir hafi verið hljóðritað fyrir tilviljun.