Sigmar hjólar í Kristrúnu fyrir stefnubreytingu Samfylkingarinnar
EyjanSigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, segir að í ljósi sögunnar sé það hálf furðulegt að í rökræðum Bjarna Benediktssonar og Kristrúnar Frostadóttur um Evrópumál í Silfrinu um helgina hafi það verið Bjarni sem var nær sannleikanum en Kristrún þegar hann sagði að Samfylkingin hefði pakkað því stefnumáli sínu að ganga í ESB ofan í kassa. Þetta Lesa meira
Benedikt segir spillingu skekja landið
Eyjan„Sumir hafa hálfan kosningarétt á við aðra. Sérvalinn aðall hefur einkarétt á gæðum sjávar á spottprís. Almenningur er látinn borga okurverð fyrir landbúnaðarafurðir og kallað stuðningur við bændur.“ Þetta er meðal þess sem kemur fram í pistli Benedikts Jóhannessonar, stærðfræðings og stofnanda Viðreisnar, í Morgunblaðinu í dag. Pistillinn ber yfirskriftina „Spilling skekur landið“. Hann hefur pistilinn á Lesa meira
Vinstri græn og Miðflokkurinn tapa fylgi – 40% styðja ríkisstjórnina
EyjanSamkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar sem Zenter rannsóknir gerðu fyrir Fréttablaðið í lok síðustu viku þá tapa Vinstri græn og Miðflokkurinn fylgi. Fylgi ríkisstjórnarinnar mælist 40,8% og hefur ekki verið svo lítið síðan í janúar á þessu ári þegar það mældist rúmlega 35%. Það er fylgi Vinstri grænna sem dregur fylgi ríkisstjórnarinnar niður. Flokkurinn hefur yfirleitt mælst með Lesa meira
„Helst virðast stjórnmálaforingjar vakna til lífsins þegar útdeila á almannafé til sérhagsmuna, jafnvel vildarvina“
Eyjaní grein sem Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar, skrifar í Morgunblaðið í dag fjallar hann um tilhneigingu margra stjórnmálamanna til að forðast að taka stórar ákvarðanir. Greininn ber heitið „Glæst fortíð framundan“. Í upphafi hennar segir Benedikt að líklega sé fátt mikilvægara hjá stjórnendum en að geta tekið ákvarðanir en þessi kostur prýði því Lesa meira
Pawel um meirihlutasamstarfið: „Vissir hlutir sem hægt er að gera betur“
EyjanPawel Bartoszek, forseti borgarstjórnar og borgarfulltrúi Viðreisnar, er í viðtali við Viðskiptablaðið í dag, þar sem hann fer um víðan völl. Hann útilokar ekki að bjóða sig fram til næstu Alþingiskosninga, eftir stutt þingsetu árið 2016-17, en segist ekki hafa tekið ákvörðun um það ennþá og segir líklegt að hann einbeiti sér að sveitarstjórnarstiginu á Lesa meira
Telur sinnuleysið minna á uppgang nasismans – „Fámennir aðilar ráða hér miklu“
EyjanÞorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, skrifar um nýja árið í Fréttablaðið í dag, líkt og allir formenn flokkanna. Hún fer með frægar ljóðlínur Martin Niemöller, prests sem var gagnrýninn á þriðja ríki nasista í Þýskalandi og virðist Þorgerður því sjá líkindi milli uppgangs nasismans á fjórða áratug síðustu aldar og því sem nú er að Lesa meira
Benedikt baunar á VG og umhverfisráðherra: „Arðbærari en nokkur önnur starfsemi, nema ef vera skyldi fíkniefnasala”
EyjanBenedikt Jóhannesson, stofnandi og fyrrverandi formaður Viðreisnar og fyrrverandi fjármálaráðherra, fer yfir pólitíkina á árinu sem er að líða í grein á Kjarnanum. Þar fljúga skotin í allar áttir, en beinast ekki síst að Vinstri grænum. Hann segir VG hafa fallið á þeim þremur prófum sem lögð hafi verið fyrir flokkinn á árinu: „Fall WOW, Lesa meira
Hagnaður hjá Viðreisn – Um 85% tekna úr opinberum sjóðum
EyjanRíkisendurskoðun hefur birt útdrátt af ársreikningi Viðreisnar fyrir árið 2018. Er það fyrsti ársreikningur flokks sem á sæti á Alþingi sem birtur er, en búið er að birta ársreikning Sósíalistaflokks Íslands. Sjá einnig: Hagnaður hjá Sósíalistum – Fengu styrki frá þekktum mönnum úr viðskiptalífinu Mest frá hinu opinbera Tekjur Viðreisnar voru 61.1 milljón, en rekstrarkostnaður Lesa meira
Benedikt baunar á Ólaf: „Hefur staðfastlega barist fyrir fullri aðild Íslands og upptöku evru“
EyjanÞað hefur varla farið framhjá mörgum að Miðflokkurinn er alfarið á móti inngöngu Íslands í ESB. Þá segir í stefnu flokksins að fá skuli óháð mat á því hvort halda skuli áfram með þátttöku Íslands í EES samstarfinu og hvort sækja eigi um breytingar á samningnum, eða þá segja sig frá honum. Nýlega skilaði starfshópur Lesa meira
Starri Reynisson er nýr forseti Uppreisnar
EyjanÁrlegur aðalfundur Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar, var haldinn síðastliðna helgi í höfuðstöðvum Viðreisnar í Ármúla 42. Starri Reynisson var kjörinn forseti Uppreisnar, Emilía Björt Írisardóttir varaforseti, Arnar Snær Ágústsson gjaldkeri, Stefanía Reynisdóttir alþjóðafulltrúi og David Erik Mollberg viðburðastjóri. „Viðreisn á að vera fremsti fánaberi frjálslyndis í íslenskum stjórnmálum. Eitt af mikilvægustu hlutverkum Uppreisnar er að sjá Lesa meira