fbpx
Laugardagur 02.maí 2026

Orðið á götunni

Orðið á götunni: Ofboð og geðshræring stjórnarandstöðunnar út af litlu máli

Orðið á götunni: Ofboð og geðshræring stjórnarandstöðunnar út af litlu máli

Eyjan
04.03.2026

Á Alþingi í gær fáruðust þingmenn stjórnarandstöðunnar yfir hinu svonefnda grásleppufrumvarpi sem var á dagskrá þingsins í gær til þriðju umræðu. Margir gátu ekki á sér heilum tekið sökum geðshræringar vegna málsins. Frumvarpið var á dagskrá kl. 15 en strax kl. 14 gerði Jón Gunnarsson það að umræðuefni undir liðnum fundarstjórn forseta. Orðið á götunni Lesa meira

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum

Eyjan
01.03.2026

Talsverðar breytingar eru á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í borginni frá síðustu kosningum. Það kemur ekki á óvart enda dugði síðasti listi flokksins ekki til annars en að tapa tveimur borgarfulltrúum þegar fylgi féll úr 30,8 prósentum í 24,5 prósent og borgarfulltrúum flokksins fækkaði um tvo. Tveimur reyndum borgarfulltrúum var algerlega fórnað, þeim Mörtu Guðjónsdóttur og Kjartani Lesa meira

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Eyjan
25.02.2026

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður verkalýðsfélagsins Eflingar, fór mikinn á Facebook í vikunni og hneykslaðist á launum borgarstjórans í Reykjavík, en laun borgarstjóra, að viðbættum föstum starfskostnaði, nema rétt tæpum þremur milljónum króna á mánuði. Þetta segir Sólveig Anna vera sturlun og ekki sé að furða þótt „ekkert gangi að hemja launaskrið og ná niður verðbólgu Lesa meira

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Eyjan
23.02.2026

Þegar Guðlaugur Þór Þórðarson tilkynnti á síðustu stundu að hann byði sig ekki fram í fyrsta sæti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á móti Hildi Björnsdóttur hafði hann tryggt sér í staðinn að hann myndi ráða nær öllu um lista flokksins fyrir utan oddvitasæti Hildar. Nú hefur þetta gengið eftir að mestu leyti en þó ekki öllu. Lesa meira

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Eyjan
22.02.2026

Flestum gengur erfiðlega að skilja þá ákvörðun að ráða Bjarna Benediktsson, fyrrverandi formann Sjálfstæðisflokksins, í stöðu framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Samtökin gegna lykilhlutverki í samningagerð á vinnumarkaði og þurfa að halda góðu sambandi við launþegahreyfinguna. Að ráða fyrrum formann Sjálfstæðisflokksins, sem er jafnan höfuðandstæðingur launafólks, í hlutverk aðalsamningamanns atvinnulífsins er eins og að veifa rauðri dulu Lesa meira

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Eyjan
20.02.2026

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á sér þann draum að verða borgarstjóri í Reykjavík. Hann hefur lengi haft mikinn áhuga á skipulagsmálum borga og varði námsárum sínum í ýmsum borgum víðs vegar að kynna sér þau mál. Um tíma átti hann sæti í Byggingarnefnd Reykjavíkur fyrir Framsóknarflokkinn meðan hann var í þeim flokki. Nú gæti hann eygt Lesa meira

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Eyjan
19.02.2026

Orðið á götunni er að ólíkt hafist þeir að Ársæll Guðmundsson, skólastjóri Borgarholtsskóla, og Guðjón Hauksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands, en heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að auglýsa stöðu forstjóra HSA þegar skipunartími Guðjóns rennur út. Sem kunnugt er firrtist Ársæll mjög við þegar menntamálaráðherra ákvað fyrir jól að auglýsa stöðu skólastjóra Borgarholtsskóla þegar skipunartími Ársæls rennur út Lesa meira

Orðið á götunni: Lilja vann og hvað svo? – Öldungaráðið stóð að baki henni

Orðið á götunni: Lilja vann og hvað svo? – Öldungaráðið stóð að baki henni

Eyjan
16.02.2026

Orðið á götunni er að Lilja Alfreðsdóttir beri engan ferskan vind með sér fyrir Framsóknarflokkinn þegar hún tekur nú við formennsku af Sigurði Inga Jóhannessyni eftir að hafa verið varaformaður flokksins og ráðherra í þeirri ríkisstjórn sem var hafnað fyrir rúmu ári. Lilja féll þá í kosningu í Reykjavík með einungis 1.600 atkvæði á bak Lesa meira

Orðið á götunni: Mannlíf hjólar í eigendur Moggans og gerir mikið úr erfiðri stöðu – hættir Moggi að koma út á pappír?

Orðið á götunni: Mannlíf hjólar í eigendur Moggans og gerir mikið úr erfiðri stöðu – hættir Moggi að koma út á pappír?

Eyjan
14.02.2026

Mannlíf birtir um helgina í slúðurdálki sínum umfjöllun um Morgunblaðið og eigendur þess. Þar segir m.a.: „Morgunblaðið er í miklum vanda þessa dagana. Blaðið hefur tapað gríðarlegum upphæðum undanfarin ár. Guðbjörg Matthíasdóttir, auðkonan úr Vestmannaeyjum, hefur að miklu leyti staðið undir tapinu og þannig bjargað fyrirtækinu. Fullyrt er að hún og aðrir bjargvættir Moggans hafi Lesa meira

Orðið á götunni: Viðskiptaráð vill snúa klukkunni aftur um heila öld – forsetinn þarf að passa sig

Orðið á götunni: Viðskiptaráð vill snúa klukkunni aftur um heila öld – forsetinn þarf að passa sig

Eyjan
13.02.2026

Egill Helgason velti því fyrir sér á Facebook í gærkvöldi hvernig á því stendur að forseti Íslands ávarpar Viðskiptaþing Viðskiptaráðs: „Hví ávarpar forseti Íslands frjálshyggjuhalleljúasamkomu þar sem helsta áherslan er lögð á hversu vont er nú að reyna að hafa hemil á framrás vitvélanna og loftslagsbreytingum? Og hversu sé nú alltof dýrt fyrir okkur að Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af

Fundarhöld um helgina