fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026

Óflokkað

Á bókamarkaði

Á bókamarkaði

Eyjan
04.03.2009

Ég fór á bókamarkaðinn í fyrradag. Keypti meðal annars glæsilega myndabók um hernámsárin eftir Þór Whitehead. Ísland í hers höndum heitir hún. Textinn í henni er mjög góður og upplýsandi eins og höfundarins er von og vísa. Meðal annars er mynd af hermönnum að marséra upp Suðurgötuna í átt að herbúðum sínum á Melunum. Undir Lesa meira

Orðspor þjóðar

Orðspor þjóðar

Eyjan
03.03.2009

Maður nær kannski ekki að hugleiða það mikið mitt í hruninu hér heima. En kannski er eitt af því alvarlegasta að orðspor Íslands er skaddað um langa framtíð. Myndin sem er dregin upp í þessari grein í hinu víðlesna tímariti Vanity Fair er ekki ýkja fögur. Hættan er að við séum að verða eins konar Lesa meira

Ógeðfelld sparisjóðasaga

Ógeðfelld sparisjóðasaga

Eyjan
03.03.2009

Græðgisvæðing sparisjóðanna í landinu – þegar stofnfjárhlutum var breytt í hlutafé sem hægt var að braska með – er einn ógeðfelldasti kaflinn í fjárgæfrasögunni miklu. Nú vilja stjórnendur Byrs að Atli Gíslason þingmaður dragi til baka ummæli sem hann lét falla um sparisjóðinn í Silfri Egils í nokkrum vikum. Ég mæli með þessum pistli Gunnars Lesa meira

Flokkurinn og hugmyndafræðin

Flokkurinn og hugmyndafræðin

Eyjan
03.03.2009

Bjarni Benediktsson, formannsefni í Sjálfstæðisflokknum, telur að ekki sé þörf fyrir hugmyndafræðilega endurnýjun í flokknum. Hann er líka þeirrar skoðunar að einkvæðingarferli bankanna hafi verið skynsamlegt. Hins vegar hefði átt að fylgja öflugara regluverk. En hugmyndafræðin var einmitt að minnka regluverkið, samanber þessa landsfundarsamþykkt frá 2007: “Lögbundið eftirlitskerfi verði ekki of íþyngjandi fyrir atvinnulífið og Lesa meira

Blús

Blús

Eyjan
03.03.2009

Fjölhæfur frambjóðandi. [youtube=http://www.youtube.com/watch?v=uNYkzuQ8t28]

Enron, Enn Rán

Enron, Enn Rán

Eyjan
03.03.2009

Jón P. Líndal sendi þessa athyglisverðu samantekt. — — — Til alþingismanna. ENRON – ENN RÁN. Eftir að horfa á fróðlegan þátt um uppgang og fall bandaríska orkufyrirtækisins ENRON um s.l. helgi skilur maður enn síður en áður aðgerðir og aðgerðaleysi íslenskra  stjórnvalda eftir útrásar- og bankahrunið hér.  Þetta segi ég nú vegna þess að Lesa meira

Svör Geirs

Svör Geirs

Eyjan
03.03.2009

Það er málfrelsi í Sjálfstæðisflokknum. Einhvern veginn vissi ég að Geir Haarde myndi svara gagnrýni innan flokks með þessum orðum. Hann segir að endurreisnarnefndin eigi að einbeita sér að framtíðinni en ekki hugsa um fortíðina. Samt hefði maður haldið að lykillinn að framtíðinni lægi í því að læra af mistökum fortíðinnar. Geir segir líka að Lesa meira

Mogginn, nýju eigendurnir og afskriftirnar

Mogginn, nýju eigendurnir og afskriftirnar

Eyjan
03.03.2009

Ég hef vonað að Morgunblaðið gæti lifað áfram. En ég veit ekki hvort þetta er aðferðin sem maður vill sjá.  Vísir, 02. mar. 2009 18:49 Íslandsbanki og Landsbanki afskrifa um 3 milljarða vegna Árvakurs Þegar leitað var til Nýja Landsbankans vegna málsins fengust þau svör að vegna bankaleyndar gæti bankinn ekki gefið upplýsingar um Árvakur. Lesa meira

Upplýsingar, gegnsæjar og í rauntíma

Upplýsingar, gegnsæjar og í rauntíma

Eyjan
02.03.2009

Hjálmar Gíslason tölvumaður var í viðtali í Silfrinu í gær. Sýndi býsna merkilegt efni sem hann hefur tekið saman um efnahagshrunið og hvernig við hefðum hugsanlega verið betur stödd ef við hefðum haft aðgang að betri upplýsingum. Til dæmis um peningamarkaðssjóðina, peningamagn í umferð, innlánsreikninga bankanna. Hjálmar boðar í raun algjört gegnsæi, að reglan sé Lesa meira

Að kaupa þingsæti…

Að kaupa þingsæti…

Eyjan
02.03.2009

Benedikt Sigurðarson sem er í framboði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi skrifar þessa athyglisverðu grein um kostnað við prófkjör, aðstoðarmenn sem gagnast þingmönnum og ráðherrum vel í prófkjöri, og Kristján Möller sem er farinn að endurnýta loforð um Vaðlaheiðargöng.

Mest lesið

Ekki missa af