fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026

Óflokkað

Sátt að nást um Evrópu?

Sátt að nást um Evrópu?

Eyjan
05.05.2009

Stjórnarflokkarnir virðast hafa náð lendingu í Evrópumálum. Hún felst einfaldlega í því að lögð verði fram tillaga á Alþingi um að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Líklega þyrfti tillagan þó að innihalda einhver samningsmarkmið. Allt bendir til þess að slík tillaga yrði samþykkt – væntanlega af öllum þingmönnum Samfylkingarinnar, þingmönnum Framsóknar og Borgarahreyfingarinnar og hluta Lesa meira

Sérfræðingur um fjársvik í Silfrinu

Sérfræðingur um fjársvik í Silfrinu

Eyjan
05.05.2009

Meðal gesta í Silfri Egils á sunnudag verður William K. Black, prófessor við University of Missouri. Black er höfundur bókar sem nefnist The Best Way to Rob a Bank is to Own One. Hann starfaði við fjármálaeftirlit áður en hann hóf háskólakennslu, var meðal annars forstjóri Institute for Fraud Prevention. Hér má sjá viðtal Bills Lesa meira

Mál Japsyar

Mál Japsyar

Eyjan
04.05.2009

Það kemur enn einu sinni í ljós að kerfið sem hefur verið byggt hér upp kringum innflytjendamál er ómanneskjulegt. Þarna á að reka burt konu sem hefur starfað vel innan samfélagsins og látið gott af sér leiða. Vonandi verður hægt að mýkja hjörtu skriffinnanna – og kannski þarf líka að huga að því að gera Lesa meira

Öfgafólk

Öfgafólk

Eyjan
04.05.2009

Gísli Marteinn skrifar mikla lofgrein um Margaret Thatcher. Hún komst til valda fyrir 30 árum, eins og annar öfgamaður, Khomeini erkiklerkur. Þar fengu tvær af helstu öfgastefnunum síðstu áratuga byr undir vængi. Er ekki þessi útgáfa af Thatcher nær sanni, konunni sem lofsöng græðgi og eigingirni og taldi að ekkert væri til sem héti samfélag?

Skortur á tiltrú

Skortur á tiltrú

Eyjan
04.05.2009

Ég held að Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon hafi mislesið stöðuna þegar þau héldu að ekkert lægi á að mynda nýja ríkisstjórn. Margir Íslendingar voru nálægt því að missa móðinn þegar þeir sáu upphæðirnar á greiðsluseðlum sínum um mánaðarmótin. Rauntekjurnar lækka hratt, verðlagið í búðunum er fjarstæðukennt. Fyrir utan vandræði þeirra sem hafa misst Lesa meira

Eru draumar Samfylkingarinnar að rætast?

Eru draumar Samfylkingarinnar að rætast?

Eyjan
04.05.2009

Þetta er það sem Samfylkinguna dreymdi um að vera í sínum blairísku draumum. Flokkur atvinnurekendanna. Annar Sjálfstæðisflokkur. Það er merkilegt að heyra stjórnmálafræðinginn og varaþingmanninn, einn hugmyndafræðing flokksins, Baldur Þórhallsson, segja þetta svona berum orðum. Svona á tíma þegar 80 prósent Íslendinga telja að viðskiptalífið hérna sé spillt.

Góðlátlegt grín

Góðlátlegt grín

Eyjan
03.05.2009

Ég spurði Kára hvort hann væri til í að fara og stjórna Silfri Egils í dag. Ég væri þreyttur. Sagðist mundu lána honum jakkaföt og gleraugu. Drengurinn brosti og sagði: „Þetta er góðlátlegt og skemmtilegt grín hjá þér, pabbi.“

Ranglátt kosningakerfi, pólitísk áhrif

Ranglátt kosningakerfi, pólitísk áhrif

Eyjan
03.05.2009

Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur flutti þennan pistil í Krossgötum Hjálmars Sveinssonar í útvarpinu í gær. — — — Ég ætla að ræða um kosningakerfið á Íslandi í ljósi kosninganna sem haldnar voru hér á landi um síðustu helgi. Það eru einkum þrjú atriði sem ég tek til umfjöllunar eða 1.    í fyrsta lagi hversu flókið og Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af