fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026

Óflokkað

Bretland í siðferðiskreppu

Bretland í siðferðiskreppu

Eyjan
12.05.2009

Eins og horfir við kjósendum í Bretlandi litur þingið í Westminster út eins og einkaklúbbur eða félag um sameiginlega hagsmuni. Stjórnmálamenn úr öllum flokkum hafa sameinast um að leggjast á skattgreiðendur með ótrúlega bíræfnum hætti. Í Guardian í dag má finna þessa úttekt á endurgreiðslum vegna kostnaðar til þingmanna Íhaldsflokksins. Þarna er kostnaður við ráðskonu Lesa meira

Ný þjóðhagsspá

Ný þjóðhagsspá

Eyjan
12.05.2009

Fjármálaráðuneytið var að birta þjóðhagsspá fyrir næstu fimm árin. Það er kannski virðingarvert að þeir séu að reyna þetta, og reyndar er tekið fram í lokin að óvissuþættirnir séu margir. Kannski væri eins hægt að rýna í telauf eða innyfi fugla eða stjörnumerkin? Það torveldar svona vinnu nokkuð að enginn virðist vita almennilega hver raunveruleg Lesa meira

Níels um loðnuveiðar

Níels um loðnuveiðar

Eyjan
12.05.2009

Þetta er athyglisverð grein hjá Níelsi Ársælssyni, líkt og fleira sem hann skrifar. Um að loðnuveiðar hafi raskað jafnvæginu í lífríki sjávar og valdið því meðal annars að sjófugli fækkar og ekki veiðist hörpudiskur í Breiðafirði.

Að þramma í takt

Að þramma í takt

Eyjan
12.05.2009

Það væri til bóta ef hægt væri að riðla flokkslínum í fleiri málum. Að ríkisstjórn segi þinginu ekki hvernig það á að sitja eða standa. Því ríkisstjórnin fer með framkvæmdavald, en Alþingi löggjafarvald. Sumir þingmenn virðast halda að þetta eigi að vera á hinn veginn. Einar Kr. Guðfinnsson, fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, skrifar grein í Lesa meira

Viðtalið við Ann Pettifor

Viðtalið við Ann Pettifor

Eyjan
11.05.2009

Hér er viðtalið við Ann Pettifor úr Silfrinu á sunnudaginn, í þremur hlutum: 1.  hluti [youtube=http://www.youtube.com/watch?v=X0fVyt_byjs] 2. hluti [youtube=http://www.youtube.com/watch?v=B342ACM4eiA] 3. hluti [youtube=http://www.youtube.com/watch?v=6XgfBa7yvMg]

Ekki krútt

Ekki krútt

Eyjan
11.05.2009

Í gær var sýnd í sjónvarpinu mynd þar sem reynt var að gera Margréti Thatcher krúttlega. Smúmílega, eins og sonur minn kallar það. Það var nánast díabólískt að horfa á þetta.

Berlusconi móðgar Íslendinga óbeint

Berlusconi móðgar Íslendinga óbeint

Eyjan
11.05.2009

Berlusconi talar um kirkju sem hann þurfti að heimsækja og segist mundu jafna við jörðu ef hún væri á Ítalíu. Kirkju í Finnlandi. Finnar kannast ekki við neitt. Kirkjan er augljóslega á Íslandi, á Þingvöllum, en þangað fór hann fyrir nokkrum árum til heimsækja vin sinn Davíð Oddsson. Ég man meira að segja eftir því Lesa meira

Breska þingið sem samsæri

Breska þingið sem samsæri

Eyjan
11.05.2009

Stjórnmálalífið í Bretlandi nötrar vegna kostnaðargreiðslna til þingmanna og ráðherra. Þingmenn hafa fengið endurgreiðslur úr opinberum sjóðum vegna ólíklegustu hluta, allt frá fasteignum til garðsláttuvéla. Peter Oborne skrifar þrumuhugvekju um þetta í Daily Mail og segir að stjórnmálamenn hafi upp til hópa orðið uppvísir að því að vera lygarar og þjófar, þingið líti út eins Lesa meira

Sparisjóðabankinn og Milestone á Flórída

Sparisjóðabankinn og Milestone á Flórída

Eyjan
11.05.2009

Nýjasti pistill Sigrúnar Davíðsdóttur úr Speglinum. Niðurlagið er svohljóðandi: „En Flórídasagan segir okkur fleira. Einhverjir hafa kannski velt því fyrir sér af hverju stærstu leikendurnir í íslensku viðskiptalífi undanfarin ár vildu allir eiga tryggingafélag. Af hverju vildu Bakkavararbræður, með Existu í takinu, eiga VÍS, auk erlendra tryggingafélaga? Af hverju sótti Jón Ásgeir Jóhannesson og Baugsveldið Lesa meira

Viðtalið við Black

Viðtalið við Black

Eyjan
11.05.2009

William K. Black, háskólaprófessor og fyrrverandi fjármálaeftirlitsmaður, hélt stórmerkilegan fyrirlestur í Háskóla Íslands. Mikið fjölmenni hlustaði á hann, meðal annars formaður rannsóknarnefndar Alþingis, sérstakur saksóknari, yfirmaður efnahagsbrotadeildar lögreglunnar og Gunnar Andersen, nýr forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Gunnar sagði frá málum sem FME er að rannsaka – og nefndi að þar kæmi meðal annars við sögu innherjaviðskipti og Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af